Mannlíf

50 ára afmæli Geimsteins fagnað á Skólavegi
Föstudagur 4. september 2026 kl. 09:43

50 ára afmæli Geimsteins fagnað á Skólavegi

Útgáfufyrirtækið Geimsteinn heldur upp á hálfrar aldar afmæli á þessu ári. Geimsteinn er nú elsta starfandi útgáfufyrirtæki landsins, en það var stofnað af Rúnari Júlíussyni og fjölskyldu hans vorið 1976. Allt frá upphafi var lagt upp með að grasrótarstarf myndi blómstra hjá fyrirtækinu og að ungir tónlistarmenn fengju þar tækifæri. Sú varð svo sannarlega raunin, en auk margra helstu listamanna þjóðarinnar má nefna að Brimkló gaf út sína fyrstu plötu hjá Geimsteini og Páll Óskar söng þar fyrst inn á plötu í ævintýrum Gylfa Ægissonar.

Í tilefni tímamótanna hefur hópur þekktra listamanna, sem stigu mörg af sínum fyrstu skrefum í Geimsteini, verið ræstur út til að halda sérstaka tónleika að Skólavegi 12. Dagskráin er uppsett þannig að listamennirnir munu bæði flytja sín bestu lög og deila sögum af ferlinum.

Langbest Ljósanótt
Langbest Ljósanótt

Dagskrá afmælistónleikanna:

  • 3. september: Bjartmar Guðlaugsson ríður á vaðið og kallar til Sumarliða, hippann, járnkarlinn og fleiri þekkta karaktera úr sínu auðuga lagasafni.

  • 11. september: Unglingahljómsveitin Pandora rifjar upp gamla takta.

  • 17. september: Sóli Hólm stígur á stokk og rifjar upp feril Gylfa Ægissonar með gamansömum hætti.

  • 24. september: Siggi og Kiddi hjálmur greina frá því hvað þeir voru að grallarast í Geimsteini fyrir ríflega 20 árum.

  • 1. október: Baggalútur fagnar rótum sínum á Skólaveginum og fer yfir sína léttustu spretti.

  • 9. október: Breiðbandið kemur í heimsókn.

  • 15. október: Félagarnir Björgvin Ívar og Valdimar ljúka afmælisröðinni með því að fara yfir heildstæð og helstu verkefni sín.
Bílakjarninn
Bílakjarninn