Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Mannlíf

Vitin fimm og minningarnar -  Guðmundur Karl Brynjarsson
Fimmtudagur 3. september 2026 kl. 07:32

Vitin fimm og minningarnar - Guðmundur Karl Brynjarsson

Málverkasýning og helgistund á Ljósanótt

Listamaðurinn og presturinn Guðmundur Karl Brynjarsson býður upp á fjölbreytta og áhugaverða dagskrá á Ljósanótt í ár undir yfirskriftinni Vitin fimm og minningarnar. Dagskráin fer fram í Kirkjulundi og Keflavíkurkirkju og samanstendur af málverkasýningu ásamt sérstakri helgistund.

Guðmundur Karl hefur þjónað sem prestur í þrjá áratugi, lengst af í Kópavogi. Hann hefur dundað sér við myndlist frá unga aldri en á síðustu árum hefur listin leitað meira og meira á huga hans. Fyrir tveimur árum dvaldi hann í Flórens á Ítalíu þar sem hann stundaði nám í olíumálun.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Verkin sem sýnd verða í Kirkjulundi eru að hluta til máluð í náminu á Ítalíu, en önnur tengjast æskuslóðunum í Keflavík og töfrum minninganna sem breyta hversdeginum í ævintýri. Guðmundur Karl sýndi einnig á Ljósanótt í fyrra og var afar ánægður með viðtökurnar.

„Það var virkilega gaman og ný reynsla sem kom pínu á óvart. Ég er vanur því að koma fram fyrir fólk og tala og svoleiðis, en gagnvart því að sýna myndirnar sínar verður maður pínu feiminn. En þarna var stöðugt rennerí af skemmtilegu fólki, gömlum sveitungum og öðrum sem var gaman að hitta og spjalla við,“ segir Guðmundur Karl.

Helgistund í Keflavíkurkirkju

sunnudagskvöldið 6. september kl. 20:00:

Sýningunni lýkur með dagskrá sem ber sömu yfirskrift, Vitin fimm og minningarnar. Dagskráin er í umsjón Guðmundar Karls og hljómsveitarinnar Þrír englar og þreyttir hestar.

Hljómsveitina skipa að þessu sinni þau Bergþór Haukdal Jónasson, Birta Sigurjónsdóttir, Henning Emil Magnússon, Jón Ólafur Erlendsson og Örn Úlfar Sævarsson. Sveitin hefur getið sér gott orð fyrir flutning á lögum Bob Dylan.

Dagskrá og opnunartímar

Málverkasýning í Kirkjulundi:

Fimmtudagur 3. september:

Kl. 17:00–22:00

Föstudagur 4. september:

Kl. 17:00–20:00

Laugardagur 5. september:

Kl. 14:30–18:0

Sunnudagur 6. september:

Kl. 13:00–16:00

Bílakjarninn
Bílakjarninn