BM Vallá 1-10 sept

Fréttir

Ráðast í umfangsmikla hagræðingu og núllgrunnsskoðun
Miðvikudagur 2. september 2026 kl. 09:12

Ráðast í umfangsmikla hagræðingu og núllgrunnsskoðun

– Minnihlutinn segir bruðlið hafa náð nýjum hæðum

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hefja víðtæka greiningu á rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins þar sem innleidd verður svokölluð núllgrunnshugsun (e. zero-based budgeting) við fjárhagsáætlanagerð. Sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi hefur verið sett á laggirnar til að tryggja að breytingarnar skili mælanlegum árangri.

Gunnlaugur Kárason, bæjarfulltrúi Miðflokksins, reifaði málið á fundi bæjarstjórnar og undirstrikaði að markmiðið væri ekki niðurskurður niðurskurðarins vegna.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Markmiðið er að fara betur með fjármuni bæjarbúa, að hver króna nýtist eins vel og mögulegt er, að boðleiðir verði styttri, ferlar einfaldari og skilvirkari,“ sagði Gunnlaugur.

Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn voru hins vegar harðorðir í garð nýs meirihluta og sögðu áformin stinga í stúf við raunverulegar ákvarðanir síðustu vikna. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, benti á að á sama tíma og talað væri um hagræðingu hefði stjórnsýslan verið stækkuð.

„Að móti þeim tíu milljónum sem er búið að spara [með fækkun nefnda] er búið að gera samning við ráðgjafa upp á allt að fjórar milljónir á mánuði og hækka laun kjörinna fulltrúa um fimmtán milljónir á ársgrundvelli. Við erum strax komin sextán milljónir í mínus,“ sagði Halldóra Fríða og bætti við að um verulegt bruðl með skattfé væri að ræða.

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri svaraði gagnrýninni og sagði að breytingarnar ættu að auka skilvirkni og flýta þjónustu. Aðrir kostnaðaraukar hefðu verið færðir til innan kerfisins án þess að kallað væri eftir nýjum fjárheimildum af óráðstöfuðu fé.

Bílakjarninn
Bílakjarninn