Fréttir

Nýtt mælaborð grunnskólastarfs í mótun
Miðvikudagur 2. september 2026 kl. 09:26

Nýtt mælaborð grunnskólastarfs í mótun

Menntaráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt tillögu um að hefja vinnu við að yfirfara og þróa árangursmælingar í grunnskólum sveitarfélagsins. Helgi Arnarson, sviðsstjóri menntasviðs, kynnti verkefnið á fundi ráðsins.

Markmiðið með mótun nýs mælaborðs er að koma á heildstæðri yfirsýn yfir lykilþætti skólastarfsins. Með því að nýta samræmd gögn og árangursmælikvarða með markvissari hætti er stefnt að því að styðja við sífelldar umbætur og efla skólastarf í öllum grunnskólum bæjarins.

Sérstakur starfshópur innan stjórnsýslunnar mun leiða verkefnið, en hann verður skipaður sviðsstjóra menntasviðs, grunnskólafulltrúa, deildarstjóra skólaþjónustu og yfirsálfræðingi skólaþjónustu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Starfshópurinn mun vinna í nánu samráði við skólastjórnendur og aðra hagaðila eftir því sem vinnunni miðar áfram.

Bílakjarninn
Bílakjarninn