Fyrirhuguð hátæknibrennslustöð óljós
Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, kallaði eftir skýrum svörum frá nýjum meirihluta Reykjanesbæjar um hvort til standi að reisa 140.000 tonna hátæknisorpbrennslustöð í Helguvík. Málið var nýlega samþykkt í drögum hjá stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við Kölku, Sorpu og umhverfisráðuneytið.
Guðný Birna benti á að fyrirhuguð stöð yrði ellefuföld á við núverandi stöð Kölku og einungis um 1,7 kílómetra frá næstu byggð.
„Nú er kominn nýr meirihluti í stjórn Reykjanesbæjar þar sem Miðflokkurinn setti í sín kosningamarkmið að byggja umrædda stöð í Helguvík. Því vil ég bera fram fyrirspurn til nýja meirihlutans: Er hátæknibrennslustöð og uppbygging hennar í Helguvík ykkar markmið?“ spurði Guðný Birna og óskaði eftir skriflegum svörum.
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri svaraði því til að verkefnið væri hvorki í málefnasamningi meirihlutans né væru uppi uppbyggingaráform af þeirra hálfu um stöðina.
„Mér finnst þetta verkefni bara vera það óljóst og mikið á reiki þróun þess að það sé einhvern veginn hægt að fara að taka einhverja skýra afstöðu til þess strax,“ sagði Vilhjálmur og ítrekaði að ekkert yrði gert gegn vilja og hagsmunum íbúa sveitarfélagsins.







