Reykjanesbær ljósanótt
Reykjanesbær ljósanótt

Íþróttir

Daníel Árnason landaði bronsi á Evrópumeistaramótinu í Ne-waza
Ljósmyndir: jsi.is
Þriðjudagur 1. september 2026 kl. 11:30

Daníel Árnason landaði bronsi á Evrópumeistaramótinu í Ne-waza

Daníel Árnason, þjálfari hjá Júdófélagi Reykjanesbæjar, náði frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í Ne-waza sem fram fór í Riga í Lettlandi um helgina. Daníel tryggði sér bronsverðlaun í þungavigtarflokki (+100 kg) sunnudaginn 30. ágúst.

Daníel fór vel af stað á mótinu og vann fyrstu viðureign sína gegn Vladimir Arm frá Eistlandi. Hann féll hins vegar úr leik í undanúrslitum gegn heimamanninum Raivis Cakstins frá Lettlandi, sem stóð uppi sem Evrópumeistari í flokknum að mótinu loknu.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Í viðureigninni um þriðja sætið mætti Daníel aftur lettneskum keppanda, Andris Palamarcuks. Daníel sýndi örugga takta, sigraði viðureignina og tryggði sér þar með bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu – frábær árangur og glæsilegur fulltrúi fyrir Júdófélag Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn