FH grýla yfir Keflvíkingum sem töpuðu í Kaplakrika
Keflvíkingum tókst ekki að hrista af sér FH grýlu og töpuðu fyrir þeim í annað sinn í sumar í leik liðanna í Bestu deild karla í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur 2-1 fyrir heimamenn.
Keflvíkingar náðu forystu með flotti marki Stefans Ljubicic, á 23. mínútu, hans tíunda í sumar. FH ingar jöfnuðu fjórum mínútum síðar með marki Gils Gíslasonar.
Heimamenn náðu forystu á 52. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki. Keflvíkingum tókst illa að skapa sér færi í síðari hálfleik og voru nær því að fá á sig fleiri mörk en að jafna.
Með sigri hefði Keflvíkingar tryggt sér í sex liða efri part úrslitakeppninnar í Bestu deildinni en liðin sem þeir eru í baráttu við eigast við í kvöld og því óljóst þegar þetta er skrifað hvernig staðan er hjá liðunum í deildinni.







