Þjóðin sagði nei - afgerandi afstaða í Suðurkjördæmi
Íslendingar höfnuðu áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið eftir þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. Litlu munaði í lokin á milli fylkinga, 52,8% sögðu nei og 47,2% já. Mikil spenna og sviftingar voru í talningu á kosninganótt.
Niðurstaða í Suðurkjördæmi var afgerandi en 60,5% kjósenda sögðu nei en 39,5% sögðu já.
Alls kusu 9890 manns eða 76,1% þátttaka.

Frá kosningadegi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.







