Samningar við Ljósbera Ljósanætur undirritaðir í Stapa
Þakkarhóf Ljósanætur var haldið í Stapa síðastliðinn miðvikudag þar sem styrktaraðilum hátíðarinnar var þakkað fyrir stuðninginn og samstarfið. Í hófinu var jafnframt undirritun samninga við aðalstyrktaraðila hátíðarinnar í ár, svokallaða Ljósbera Ljósanætur.
Hlutverki Ljósbera í ár gegna níu fyrirtæki: Landsbankinn, KEF Keflavíkurflugvöllur, Skólamatur, BUS4U, Blue Car Rental, Nettó, GTS, JeES og Reykjanes Investment. Auk þeirra styður mikill fjöldi fyrirtækja hátíðina, en á sjötta tug þeirra leggja Ljósanótt lið með fjárframlögum, þjónustu og margvíslegu samstarfi.
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, lagði áherslu á samfélagslega þátttöku við undirritunina og sagði að Ljósanótt yrði ekki til hjá sveitarfélaginu einu heldur vegna þess að samfélagið allt legðist á eitt. Dagskrá hátíðarinnar er aðgengileg á vefnum ljosanott.is.
Það var svo Saga Garðarsdóttir leikkona sem endaði hófið með Ljósberunum á stuttu uppistandi þar sem hláturtaugarnar voru kitlaðar.







