Fjörutíu kjörnir í undirkjörstjórn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt skipan 40 fulltrúa í undirkjörstjórn ásamt átta varamönnum vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer laugardaginn 29. ágúst 2026.
Töluverðar umræður urðu um fyrirkomulag kosningarinnar þar sem Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, velti því fyrir sér hvort verið væri að fara á svig við bæjarmálasamþykkt með því að láta yfirkjörstjórn velja alla 40 fulltrúana í stað þess að bæjarstjórn tilnefndi sérstaklega þriggja manna stjórn.
„Þetta snýst ekkert um hæfni þeirra 40 sem tilnefnd eru, heldur um að við eigum samkvæmt samþykktum að tilnefna þrjá fulltrúa sérstaklega af okkar hálfu,“ sagði Guðný Birna.
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri sagði fyrirkomulagið fullkomlega löglegt og unnið af ábyrgð:
„Tillagan er útfærð af okkar öfluga fólki í yfirkjörstjórn sem hefur unnið allar kosningar hjá okkur. Hún er unnin ópólitískt og tryggir að manna megi þriggja manna kjördeildir með varamönnum.“
Tillaga yfirkjörstjórnar var samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. Samhliða var Aðalheiður Hilmarsdóttir samþykkt sem áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar í yfirkjörstjórn og Margrét Sturlaugsdóttir til vara.







