Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Fagna ákvörðun um að fella niður byggingarréttargjöld
Miðvikudagur 26. ágúst 2026 kl. 17:35

Fagna ákvörðun um að fella niður byggingarréttargjöld

Meistarafélag byggingamanna á Suðurnesjum og Rafverktakafélag Suðurnesja fagna ákvörðun meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um að fella niður byggingarréttargjöld. Félögin líta á ákvörðunina sem mikilvægt skref í þágu húsnæðis- og atvinnuuppbyggingar og hvetja önnur sveitarfélög og stjórnvöld til að taka Reykjanesbæ sér til fyrirmyndar.

Í tilkynningu frá félögunum hafa um nokkurt skeið haft áhyggjur af sívaxandi gjaldtöku sveitarfélaga vegna byggingarréttar og gatnagerðar en gjaldtakan hefur vaxið langt umfram almenna kostnaðarþróun í greininni. 

Þá skora félögin á stjórnvöld að taka ákvörðun Reykjanesbæjar sér til fyrirmyndar og stíga skref sem greiða fyrir íbúða- og atvinnuuppbyggingu, í stað þess að þyngja hana. 

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Í ályktuninni kemur fram að fyrirhuguð skattahækkun stjórnvalda muni auka byggingarkostnað, draga úr framboði íbúða og grafa undan þeim árangri sem náist með ákvörðunum á borð við þá sem Reykjanesbær hafi nú tekið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn