Langbest þakkargj
Langbest þakkargj

Fréttir

Líklegast að kvika hlaupi á ný frá Svartsengi í átt að Sundhnúksgígaröðinni
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. VF/hilmarbragi
Þriðjudagur 24. nóvember 2026 kl. 17:21

Líklegast að kvika hlaupi á ný frá Svartsengi í átt að Sundhnúksgígaröðinni

Kvika safnast enn fyrir undir Svartsengi, þremur árum eftir að kvikuhlaup leiddi til rýmingar Grindavíkur. Veðurstofa Íslands telur líklegast að kvika hlaupi á ný frá Svartsengi í átt að Sundhnúksgígaröðinni. Það gæti leitt til tíunda eldgoss hrinunnar. Óvíst er hvenær næsta kvikuhlaup verður og Veðurstofan segir að fyrirvarinn geti orðið stuttur. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Veðurstofunnar í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá upphafi eldsumbrota við Sundhnúksgígaröðina.

Mælingar geta gefið fyrstu vísbendingar

Veðurstofan fylgist áfram náið með jarðskjálftum og hreyfingum jarðskorpunnar. Skyndileg fjölgun smáskjálfta og snöggar breytingar á aflögun jarðskorpunnar geta bent til þess að kvika sé komin á hreyfingu. Veðurstofan birtir reglulega upplýsingar um landris, kvikusöfnun og hættumat á Reykjanesskaga.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Níu gos frá rýmingu Grindavíkur

Grindavík var rýmd 10. nóvember 2023 þegar um 15 kílómetra langur kvikugangur myndaðist. Hann lá í gegnum Grindavík og náði út fyrir ströndina. Rúmlega 2.000 skjálftar mældust þann sólarhring og urðu miklar skemmdir á mannvirkjum og innviðum vegna skjálfta og jarðskorpuhreyfinga. Fyrsta gos hrinunnar hófst 18. desember sama ár og síðan hafa átta gos bæst við.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100