Fréttir

Keflvíkingur stofnar íslenskan samfélagsmiðil
Hjónin Gylfi og Ragna.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 24. nóvember 2026 kl. 15:08

Keflvíkingur stofnar íslenskan samfélagsmiðil

„Í dag treystum við á erlenda samfélagsmiðla fyrir stórum hluta upplýsingaflæðis í íslensku samfélagi. Okkur fannst kominn tími til að skapa íslenskan valkost þar sem fólk hefur meiri stjórn á því hvað það sér og hvernig gögnin þess eru nýtt,“ segir Keflvíkingurinn Ragna Árný Lárusdóttir en hún og Snorri Gylfason maður hennar hafa stofnað íslenskan samfélagsmiðil, alvilda.is. Þau kynntu miðilinn m.a. á Ljósanótt.

Á sama tíma og gagnanotkun erlendra samfélagsmiðla er til umræðu vilja stofnendur Alvildu skapa íslenskan vettvang fyrir upplýsingar, viðburði og samfélagsumræðu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þau spyrja: Hvað ef Íslendingar þyrftu ekki að treysta á Facebook til að fylgjast með því sem gerist í þeirra eigin nærumhverfi?

Íslenska sprotafyrirtækið Alvilda vill svara þeirri spurningu með stafrænu upplýsingatorgi þar sem einstaklingar, félagasamtök, sveitarfélög og fjölmiðlar geta miðlað upplýsingum og tengst sínu samfélagi. Vettvangurinn var opnaður á vefnum alvilda.is um helgina, samhliða smáforritum fyrir iOS og Android.

Keflvíkingurinn Ragna Árný er framkvæmdastjóri og Snorri Gylfason tæknistjóri en hann starfaði áður í 12 ár sem kerfisarkitekt hjá Meta/Facebook og þekkir því starfsemi alþjóðlegra samfélagsmiðla af eigin raun.

Alvilda vakti fyrst athygli með kynningu á Ljósanótt í Reykjanesbæ í september síðastliðnum, þar sem markmiðið var að tengja bæjarbúa og gesti við viðburði og staðbundið mannlíf.

„Frá tæknilegu sjónarhorni vildum við sanna að það er vel hægt að byggja hraðvirkan, nútímalegan samfélagsmiðil frá grunni á íslenskum innviðum án þess að treysta á erlenda skýjarisa,“ segir Snorri.

Alvilda býður íslenskum fjölmiðlum, sveitarfélögum, íþróttafélögum og menningarstofnunum að stofna síður án endurgjalds. Þar geta þau birt fréttir, viðburði og tilkynningar og vísað notendum beint á eigin vefsvæði.

Undanfarnar vikur hafa fyrirhugaðar breytingar á skilmálum Meta, móðurfélags Facebook og Instagram, vakið umræðu um rétt tæknifyrirtækja til að safna og nýta stafrænt efni. Alvilda segir í tilkynningu að hún byggi á þremur megináherslum:

- Raunverulegt fólk: Notendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum við nýskráningu (og nota Passkeys eftir það) til að koma í veg fyrir falska aðganga og botta.

- Íslensk gagnahýsing: Gögn notenda eru hýst á Íslandi og efni þeirra er ekki notað til að þjálfa gervigreind.

- Notandinn ræður upplýsingaflæðinu: Fólk velur sjálft hvaða síðum og viðburðum það fylgist með, án auglýsingadrifinna reiknirita sem stýra því hvaða efni birtist.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100