Afla verðtilboða í greiningu á uppbyggingu íþróttamannvirkja á Miðjunni
Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti samhljóða á fundi sínum 11. nóvember að fela bæjarstjóra að afla verðtilboða í greiningu á því hvernig Miðjan gæti nýst sem framtíðarsvæði fyrir íþróttamannvirki sveitarfélagsins. Ráðgjafar eiga að meta þörfina fyrir mannvirkin, forgangsraða uppbyggingu og leggja fram frumkostnaðarmat.
Verkefnið byggir á ákvörðun bæjarstjórnar um að ráðast í sjálfstæða greiningu á uppbyggingu svæðisins. Á fundi bæjarráðs var lagt fram minnisblað bæjarstjóra um mögulega ráðgjafa og samþykkt að leita tilboða hjá þeim ráðgjöfum sem tilgreindir voru.
Verkbeiðnin á að taka mið af fyrirhugaðri hugmyndasamkeppni um Miðjuna og heildarendurskoðun aðalskipulags til að forðast tvíverknað. Þegar frekari gögn liggja fyrir leggur bæjarstjóri niðurstöður verðfyrirspurnarinnar og tillögu að vali ráðgjafa fyrir bæjarráð til staðfestingar.





