Íþróttir

Vilborg til Vals
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 22. nóvember 2026 kl. 15:50

Vilborg til Vals

Njarðvíkingurinn Vilborg Jónsdóttir hefur gengið til liðs við Valsmenn í Bónus-deildinni í körfubolta. Vilborg er nýkomin heim frá Bandaríkjunum þar sem hún stundaði háskólanám og lék körfubolta. 

Vilborg var lykilmaður í liði UMFN áður en hún hélt utan og varð Íslandsmeistari með liðinu 2022. Þá lék hún lék með yngri landsliðum áður en hún hélt til Bandaríkjanna.

Vilborg er leikstjórnandi og kemur með mikla reynslu inn í Valsliðið. 

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

„Ég er mjög spennt fyrir því að koma til liðs við Val og þakka Jamil fyrir að treysta mér fyrir því að koma inn í liðið. Ég hlakka til þess að leggja mitt að mörkum til þess að gefa okkur sem bestan séns að sækja titillinn,“ segir Vilborg í tilkynningu frá Val.

Jamil þjálfari Vals: ,,Ég hef heyrt mjög góða hluti um Vilborgu og hlakka mikið til að sjá hana í leik með stelpunum okkar. Hún hefur nú þegar tengst liðinu vel og það verður frábært að fá enn einn reynslumikinn bakvörð til að styrkja okkar sterka kjarna.“

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100