Mannlíf

Hamarslög og handverkshefðir í Höfnum
Laugardagur 21. nóvember 2026 kl. 12:24

Hamarslög og handverkshefðir í Höfnum

Hnífar, skeið og næla urðu til úr hráum stálstöngum þegar Fornverk í Höfnum hélt sín fyrstu eldsmíðanámskeið fyrstu tvær helgarnar í nóvember. Eldsmíðin bætist nú við grjóthleðslu og grindarsmíði í starfseminni.

Eldur logaði og hamarslög ómuðu þegar þátttakendur á tveimur þriggja daga byrjendanámskeiðum kynntust því hvernig móta má stál með eldi, hamri og steðja. Leiðbeinandi var Þröstur Sigmundsson, Norðurlandameistari í opnum flokki í eldsmíði 2026 og silfurverðlaunahafi á Íslandsmóti sama ár.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Að sögn Sveins Enoks Jóhannssonar, sem stendur að baki Fornverki, var sköpunargleðin mikil og gripirnir ólíkir eftir hugmyndum og handbragði hvers og eins.


„Það er ótrúlega gaman að sjá hvað fólk getur skapað á einni helgi. Þátttakendur byrjuðu með hráar stálstangir og fóru heim með hluti sem þeir höfðu smíðað sjálfir. Það er einmitt kjarninn í Fornverki – að gefa fólki tækifæri til að læra handverkið með því að prófa sjálft og halda þannig þekkingunni lifandi,“ segir Sveinn.

Starfsemi Fornverks hófst með grjóthleðslunámskeiðum árið 2024. Síðan hafa þátttakendur unnið að endurhleðslu gamalla garða og tófta og kynnst hefðbundinni grindarsmíði. Með námskeiðunum er varðveisla minja tengd verklegri kennslu og miðlun handverksþekkingar.

Sveinn er fæddur og uppalinn í Höfnum. Markmið hans með Fornverki er að halda gamalli verkkunnáttu lifandi, skapa vettvang þar sem fólk lærir hvert af öðru og vekja áhuga á sögu og menningararfi þorpsins. Eldsmíðanámskeiðin eru nýjasta viðbótin við það starf.


HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100