Jóel
Jóel

Fréttir

Bæjarráð Grindavíkur samþykkir verklag við niðurrif fjögurra húsa við Vesturhóp
Föstudagur 20. nóvember 2026 kl. 10:03

Bæjarráð Grindavíkur samþykkir verklag við niðurrif fjögurra húsa við Vesturhóp

Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á fundi sínum 18. nóvember fyrirhugað verklag við niðurrif fjögurra húsa við Vesturhóp og viðgerð á sprungu í Stamphólsgjá. Ráðið leggur áherslu á að viðgerðinni verði hagað þannig að unnt verði að hefja leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar á ný við öruggar aðstæður.

Samkvæmt fundargerð hafði fyrirhugað verklag verið rætt við fjölskyldu Lúðvíks, lögreglustjóra og forsætisráðuneytið. Samkomulag var um hvernig staðið yrði að framkvæmdinni og hvernig öryggi á vettvangi yrði tryggt.

Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að fjölskylda Lúðvíks fái reglulega upplýsingar um framvindu verksins og að fulltrúar hennar fái að koma ábendingum á framfæri þegar tilefni er til.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100