Samfélagið var tilbúið að leggja sitt af mörkum
Söfnun fyrir nýju brjóstaskimunartæki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja stefnir í að skila um 55 milljónum króna og fara þannig fram úr markmiðum. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS segir þakklæti efst í huga. Framlögin, stór og smá, sýni bæði einstakan samtakamátt og traust sem stofnuninni beri að standa undir.
„Það sem mér finnst skipta mestu máli er þessi víðtæka þátttaka í samfélaginu sem kemur svo vel í ljós í þessari söfnun,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Þegar söfnuninni fyrir nýju brjóstaskimunartæki lýkur formlega 18. nóvember á vef sar.is stefnir í að um 55 milljónir króna hafi safnast. Markmiðið var að safna 50 milljónum fyrir kaupum á tækinu og uppsetningu þess. Söfnunin hófst í bleikri messu í Keflavíkurkirkju 18. október og á einum mánuði hefur samfélagið tekið höndum saman um að efla þjónustu við konur á Suðurnesjum.
Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafa lagt sitt af mörkum. Guðlaug Rakel segir að að baki árangrinum liggi vilji fólks til að taka þátt, hver með sínum hætti.
„Hvað fólk vill leggja af mörkum og hvað fólk leggur af mörkum, hvort sem það er stór upphæð eða lítil upphæð,“ segir hún um það sem standi upp úr. Það sé einmitt þessi víðtæka þátttaka sem henni þyki svo vænt um.
„Það er einmitt þessi víðtæka þátttaka sem henni þyki svo vænt um. Hver upphæð skiptir máli og hún er gefin með góðu hugarfari“
Traust sem fylgir ábyrgð
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, hafa haldið utan um söfnunina í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, kirkjuna og fjölmarga velunnara. Guðlaug Rakel leggur áherslu á að árangurinn sé sameiginlegur. „Þetta er samstarfsverkefni,“ segir hún.
Fyrir HSS felist þó meira í framlögunum en fjárhagslegur stuðningur við tækjakaup. Fólk sé að fela stofnuninni verkefni og sýna henni traust. Því fylgi ábyrgð.
„Þetta byggir á því að fólk treysti stofnuninni fyrir þessu og fyrir þessum fjármunum sem hafa verið lagðir í söfnunina. Að við munum halda úti brjóstaskimun hér og gera það vel og vera til fyrirmyndar.“
Hún lítur á verkefnið sem lið í uppbyggingu bæði stofnunarinnar og samfélagsins. Nýtt tæki skapi möguleika á betri þjónustu nær heimilum fólks, en árangurinn þurfi líka að birtast í því að fleiri konur mæti í skimun.
Að hennar sögn er þátttaka í brjóstaskimun á svæðinu um 55 prósent. Hún vill sjá það hlutfall fara í að minnsta kosti 70 prósent og stefnir enn hærra.
„Við náum skimunarhlutfallinu hérna upp yfir landsmeðaltalið og hækkum landsmeðaltalið,“ segir hún um markmiðið.
Til þess þurfi áframhaldandi vitundarvakningu og samstarf. Atvinnurekendur og stofnanir samfélagsins geti þar gegnt mikilvægu hlutverki með því að hvetja konur til að mæta.
Samfélagið hefur áður svarað kallinu
Konráð Lúðvíksson, fyrrverandi lækningaforstjóri HSS sem átti sæti í starfshópi sem kom að söfnuninni, segir viðbrögðin eiga sér skýrar rætur. Suðurnesjafólk hafi ítrekað stutt við heilbrigðisþjónustuna sína þegar á hafi þurft að halda.
Hann rifjar upp stuðning við kaup á sneiðmyndatækjum, búnaði á skurðstofur, ómtækjum og öðrum tækjakosti. Í hvert sinn hafi samfélagið verið tilbúið að leggja sitt af mörkum.
„Það gefur til kynna hug þessa samfélags til stofnunarinnar,“ segir Konráð.
Heilbrigðisstofnunin hafi gengið í gegnum hæðir og lægðir, en vilji íbúanna til að styðja hana hafi haldist. Hún sé einn af þeim stöðum sem fólk sameinist um.
Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur Keflavíkurkirkju tekur undir að tengsl samfélagsins við stofnanir sínar skipti miklu máli. Hún segir breytingar á HSS undanfarin tvö ár hafa verið sýnilegar og að aukið traust og stolt fylgi þeim.
„Við sjáum um okkur sjálf,“ segir hún og lýsir þannig þeim anda sem birtist í söfnuninni.
Ingvar Eyfjörð frá SAR segir HSS vera kjarnastofnun í samfélaginu. Honum sé efst í huga að þakkirnar fyrir árangurinn nái til allra sem hafi tekið þátt. Í raun geti samfélagið þakkað sjálfu sér.
Næsta verkefni er að byggja upp þjónustuna
Undirbúningur að komu tækisins er þegar hafinn og stefnt er að því að taka það í notkun á næsta ári og stefnt er á fyrsta ársfjórðung. Auk tækjakaupanna þarf að ráðast í breytingar á húsnæði og sinna þjálfun starfsfólks.
Guðlaug Rakel segir næstu skref snúast um að byggja upp þjónustuna og standa undir væntingunum sem fylgja þessum mikla stuðningi.
En þegar hún horfir yfir söfnunina og það sem samfélagið hefur áorkað á fáeinum vikum er þakklætið sterkast.
„Fyrir hönd stofnunarinnar fyllist ég hlýju og þakklæti,“ segir hún. „Það er alveg einstakt hvað samfélagið hefur gert vel.“





