Veita 1,5 milljónir í tímabundið félagsstarf við Njarðvíkurskóla
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að verja 1,5 milljónum króna til að styrkja félagsstarf við Njarðvíkurskóla tímabundið. Tillagan var samþykkt með öllum fimm atkvæðum ráðsins á fundi 12. nóvember.
Ákvörðunin byggist á minnisblaði um tímabundið félagsmiðstöðvarstarf við skólann.
Starfið verður endurmetið í janúar
Gert er ráð fyrir að úrræðið verði endurmetið í janúar 2027.
Fjárveitingunni verður mætt með viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026. Á móti henni koma útsvarstekjur sem eru umfram áætlun.







