Fréttir

Framlengja jarðvinnuleyfi vegna nýs gagnavers við Valhallarbraut
Miðvikudagur 18. nóvember 2026 kl. 11:17

Framlengja jarðvinnuleyfi vegna nýs gagnavers við Valhallarbraut

Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að framlengja gildistíma framkvæmdaleyfis Verne Global ehf. vegna jarðvinnu við nýtt gagnaver að Valhallarbraut 868.

Lóðin er 24 þúsund fermetrar. Fyrra leyfið gilti til 26. október en fyrirtækið óskaði eftir framlengingu til loka febrúar 2027.

Ráðið samþykkti erindið á fundi sínum 6. nóvember. Leyfið sem fjallað var um tekur til jarðvinnu við fyrirhugað gagnaver.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100