Grínsýningin FramtÝð Íslands í Frumleikhúsinu
Allt öðruvísi grínsýning þar sem þú veist ekkert hvað gerist næst!
Leikarinn Jóel Sæmundsson mætir í Frumleikhúsið í Keflavík næstkomandi laugardag, 21. nóvember kl. 20:00, með nýja grínsýningu sem ber heitið FramtÝð Íslands.
Um er að ræða 90 mínútna óvissuferð þar sem líkamlegur húmor, absúrd og vandræðalegheit og óútreiknanleiki ráða ríkjum.
Sýningin er byggð á fyrirlestrum Jóels sem hafa vakið mikla lukku!
Hún hefur þegar vakið mikla lukku og áhorfendur hafa sagt
„Fersk, fyndin og grilluð sýning.“
„Var enn hlæjandi þegar ég fór að sofa.“
„Eitt það fyndnasta sem er í boði á Íslandi í dag.“
Það stefnir í mikið gaman í Frumleikhúsinu á laugardagskvöldið og því um að gera að tryggja sér miða og hlýja sér með miklum hlátri! Barinn verður opinn og því tilvalið að mæta snemma og ná sér í drykk fyrir.
Fréttatilkynning.





