Mannlíf

Verðlaunabækur og föndur á bókasafninu
Þriðjudagur 10. nóvember 2026 kl. 05:36

Verðlaunabækur og föndur á bókasafninu

Tvenn verðlaunuð barnabókaverk verða í sviðsljósinu á Bókasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 14. nóvember þegar börnum og fjölskyldum er boðið á viðburðinn „Bókakonfekt barna og föndur“. Dagskráin stendur frá klukkan 15:30 til 18 og er aðgangur ókeypis.

Eva Rún og Blær kynna bók sína Bestu vinir, sem hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026. Bókin er spennusaga um vináttu þar sem hasar og húmor koma við sögu.

Einnig verður lesið úr Síðasta deginum, þar sem Matthildur Yrsa Sigurðardóttir segir frá reynslu sinni af náttúruhamförunum í Grindavík. Matthildur Yrsa var ellefu ára þegar hamfarirnar hófust og vann bókina í samvinnu við Þórunni Rakel Gylfadóttur. Didda Flygenring myndlýsir verkið. Fyrir bókina hlutu þær Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin, árið 2026.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Höfundarnir lesa upp og spjalla við gesti en að upplestri loknum verður boðið upp á föndur fyrir alla krakka.

Öll eru velkomin á viðburðinn sem er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100