Endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnt í Grindavík
Forsætisráðuneytið og Fasteignafélagið Þórkatla hf. boða Grindvíkinga til kynningarfundar í Gjánni í Grindavík miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 17.
Á fundinum verður endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnt. Fundargestum gefst tækifæri til að bera fram spurningar og taka þátt í umræðum.
Fundinum verður einnig streymt, að því er fram kemur í tilkynningu Grindavíkurbæjar.





