Gunnar Þórarinsson látinn
Gunnar Þórarinsson viðskiptafræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ lést mánudaginn 3. nóvember á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum í Reykjanesbæ.
Gunnar fæddist í Reykjavík 11. apríl 1949 og var elstur fimm systkina. Foreldrar hans voru hjónin Guðlaug Sæmundsdóttir og Þórarinn Jens Óskarsson.
Gunnar var viðskiptafræðingur og húsasmiður að mennt. Hann var lengst af búsettur ásamt fjölskyldu sinni í Njarðvík en þau fluttu suður árið 1976. Fyrstu árin syðra kenndi hann viðskiptagreinar við Fjölbrautarskóla Suðurnesja eða frá 1977 til ársloka 1990. Hann stofnaði fyrirtækið Rekstrarþjónustuna og rak ásamt eiginkonu sinni um áratugaskeið. Gunnar kom talsvert að félagsmálum. Hann var virkur í starfi UMFN allt frá því að hann flutti suður. Fyrst sem leikmaður Njarðvíkur árið 1976 en áður hafði Gunnar spilað knattspyrnu með Breiðablik og spilaði m.a. fyrsta bikarúrslitaleik Breiðabliks árið 1971. Gunnar fór í stjórn knattspyrnudeildar UMFN árið 1976 og var formaður árin 1982-1988. Gunnar var formaður Íþróttabandalags Suðurnesja árin 1979-1984. Þá sat hann í stjórn körfuknattleiksdeildar UMFN frá 1996-1998.
Gunnar var formaður Golfklúbbs Suðurnesja árin 2002–2008. Gunnar hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín í íþróttahreyfingunni, m.a. Silfurmerki KSÍ, Starfsmerki UMFÍ og gullmerki með lárviðarsveig UMFN (æðstu viðurkenningu). Gunnar sat í sóknarnefnd Ytri Njarðvíkurkirkju til fjölda ára.
Gunnar var bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ í tólf ár, árin 2010–2022, fyrsta kjörtímabilið fyrir Sjálfstæðisflokkinn en tvö seinni kjörtímabilin fyrir bæjarmálaaflið Frjálst afl sem hann stofnaði með góðu fólki árið 2014. Gunnar var um skeið forseti bæjarstjórnar, átti sæti í bæjarráði og sat í ýmsum nefndum. Hann var í stjórn HS veitna og formaður stjórnar árin 2015–2019.
Eiginkona hans er Steinunn Sighvatsdóttir, fædd 11. nóvember 1950. Börn þeirra: Guðni Þór, fæddur 1971, Sighvatur Ingi fæddur 1975 og Sunna fædd 1979.





