Oddný fær lausn frá störfum sem varabæjarfulltrúi
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti beiðni Oddnýjar Kristrúnar Ásgeirsdóttur um lausn frá störfum sem varabæjarfulltrúi D-lista.
Fulltrúar B-, S- og D-lista samþykktu beiðnina en fulltrúar Miðflokksins sátu hjá.
Haukur Andreasson þakkaði Oddnýju fyrir störf í þágu D-listans og samfélagsins og óskaði henni velfarnaðar.
Anton Kristinn Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, tók undir þakkirnar fyrir hönd fundarins.





