Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Fréttir

Áskoranir í rekstri Suðurnesjabæjar á næsta ári
Ráðhús Suðurnesjabæjar í Garði. VF/hilmarbragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 5. nóvember 2026 kl. 12:49

Áskoranir í rekstri Suðurnesjabæjar á næsta ári

Fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar nær ekki settum markmiðum

Drög að fjárhagsáætlun Suðurnesjabæjar fyrir árið 2027 ná ekki öllum þeim fjárhagslegu markmiðum sem bæjarráð setti sér í sumar. Rekstrargjöld hækka hraðar en tekjur og handbært fé verður samkvæmt drögunum talsvert undir markmiðum. Þá þarf sveitarfélagið að taka 250 milljóna króna lán fyrir lok þessa árs til að tryggja handbært fé.

Þetta kom fram í máli Alexöndru Jóhannesdóttur bæjarstjóra við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun áranna 2027–2031 á bæjarstjórnarfundi í Suðurnesjabæ 4. nóvember. Hún lagði áherslu á að drögin væru enn á vinnslustigi og vænta mætti umtalsverðra breytinga milli umræðna. Þá hefur það legið fyrir allt þetta ár að taka þurfi lánið og það hafi t.a.m. verið inni í fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 en vegna stöðu á fjármálamörkuðum hefur verið beðið eins lengi og mögulegt er með lántökuna.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að vísa áætluninni til síðari umræðu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Gjöld hækka um rúm sjö prósent

Samkvæmt drögunum verður rekstrarafgangur A-hluta sveitarfélagsins 76 milljónir króna á næsta ári, eða tæplega eitt prósent tekna. Samanlagður rekstrarafgangur A- og B-hluta er áætlaður 143 milljónir króna.

Tekjur A-hluta hækka um rúm þrjú prósent frá útkomuspá ársins 2026 en rekstrargjöld um rúm sjö prósent.

Veltufé frá rekstri er áætlað 599 milljónir króna, eða 7,8 prósent, og handbært fé í árslok 279 milljónir. Markmið bæjarráðs frá því í júní gera hins vegar ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði yfir tíu prósent og handbært fé í árslok að minnsta kosti 500 milljónir.

Þá er stefnt að því að rekstrarafgangur A-hluta nemi að minnsta kosti einu prósenti tekna, skuldir hans fari ekki yfir 80 prósent tekna og lántaka verði ekki meiri en helmingur fjárfestinga.

Minnkandi framlög og hækkandi kostnaður

Bæjarstjóri sagði forsendur áætlanagerðarinnar krefjandi. Gert væri ráð fyrir 3,6 prósenta verðbólgu og fimm prósenta hækkun launavísitölu á næsta ári. Á sama tíma héldu framlög Jöfnunarsjóðs áfram að lækka og fasteignamat íbúðarhúsnæðis stæði nánast í stað.

Gjöld hefðu einnig hækkað nokkuð á yfirstandandi ári og þörf væri á 250 milljóna króna lántöku fyrir árslok til að tryggja handbært fé.

Niðurstöður rekstrarúttektar, sem ætlað er að styðja við hagræðingu og aukna framlegð, eiga að liggja fyrir um miðjan nóvember. Þær verða nýttar við áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunina.

Enn er unnið að fjárfestingaáætlun og eftir er að færa inn tölur vegna samrekstrar sem fellur undir A-hluta. Þá stendur yfir yfirferð launaáætlunar og vinnubóka stjórnenda, endurskoðun innri leigu og upplýsingaöflun vegna kostnaðar við úrgangsmál.

Útsvarið óbreytt og gjaldskrárviðmið 2,5 prósent

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á næsta ári, 14,97 prósent.

Daði Bergþórsson, fulltrúi Miðflokksins, sagði ekki sjálfgefið að íbúar greiddu útsvar í hámarki. Hann teldi þó bæjarsjóð ekki hafa efni á lækkun nú. Anton Kristinn Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, tók undir að svigrúmið væri lítið en lýsti vonum um að hagræðing gæti skapað forsendur til að skoða lækkun síðar á kjörtímabilinu.

Haukur Andreasson lagði áherslu á að styrkja útsvarstekjur með atvinnuuppbyggingu og hærra menntastigi.

Viðmið almennra gjaldskrárhækkana við áætlanagerðina verður 2,5 prósent. Bæjarstjórn á þó enn eftir að fjalla um styrki og afslætti.

Samþykktu þrjá viðauka við áætlun þessa árs

Á fundinum voru jafnframt staðfestir þrír viðaukar við fjárhagsáætlun ársins 2026.

Viðaukar vegna tímabundinnar aukinnar skammtímadvalarþjónustu og sameiningar frístundaþjónustu í Sólborg voru samþykktir samhljóða.

Viðauki vegna leiðréttingar á greiðslu fyrir leikskólarekstur var samþykktur með atkvæðum B-, S- og D-lista gegn atkvæðum Miðflokksins. Samkvæmt máli Daða hafði rekstraraðilinn óskað eftir 35 milljónum króna vegna hallareksturs árin 2025 og 2026 en niðurstaðan orðið 20 milljóna greiðsla.

Daði gagnrýndi greiðslu umfram gildandi samning og óvissu um frekari fjárþörf. Bæjarstjóri sagði vinnu við samningsmálin standa yfir.

Ný verkefni kalla á frekari fjárhagslega útfærslu

Á fundinum voru einnig samþykkt áform um gervigrasvöll á aðalvelli Reynis, framtíðarstaðsetningu ráðhúss við Sunnubraut 4 og undirbúning lífsgæðakjarna í Vörðunni. Endanlegar kostnaðartölur þessara verkefna voru ekki kynntar í umræðunni.

Tillögum um endurskoðun aðalskipulags, aðgerðaáætlun í umhverfismálum og opið bókhald var vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

Þá var bæjarstjóra falið að undirbúa viðauka vegna niðurrifs og förgunar Valþórs ÁR 123 í Sandgerðishöfn. Áætlaður kostnaður við þá leið sem sveitarfélagið hyggst fara er fjórar til fimm milljónir króna.

Íbúar geta sent ábendingar vegna fjárhagsáætlunarinnar til og með 9. nóvember. Bæjarstjóri sagði markmiðið að við síðari umræðu lægi fyrir ábyrg áætlun sem styrkti rekstur sveitarfélagsins og tryggði góða þjónustu við íbúa.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100