Verne Global styrkir Keflavík
Verne Global hefur gert styrktar- og samstarfssamning við knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir Keflavíkur. Með samningnum leggur fyrirtækið sitt af mörkum til öflugs íþróttastarfs í Reykjanesbæ og styður við starfsemi tveggja stærstu íþróttagreina félagsins, segir í frétt frá Verne og Keflavík.
Verne Global rekur gagnaver á Ásbrú og hefur um árabil verið hluti af atvinnulífi Suðurnesja. Með samstarfinu vill fyrirtækið styrkja tengsl sín við nærsamfélagið og styðja við það mikilvæga starf sem unnið er innan íþróttahreyfingarinnar.
„Við hjá Verne Global leggjum mikla áherslu á að vera virkur þátttakandi í því samfélagi sem við störfum í. Íþróttafélögin gegna þar gríðarlega mikilvægu hlutverki, ekki síst í starfi með börnum og ungmennum. Keflavík á sér ríka sögu í bæði knattspyrnu og körfuknattleik og við erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum til þess að styðja við það öfluga starf sem þar fer fram,“ segir Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne Global.
Báðar deildir Keflavíkur halda úti umfangsmiklu íþróttastarfi, allt frá yngstu iðkendum til meistaraflokka karla og kvenna. Samstarf við fyrirtæki á borð við Verne Global er mikilvægur þáttur í áframhaldandi uppbyggingu starfsins og því að skapa góða umgjörð um iðkendur á öllum aldri.
Forsvarsmenn knattspyrnu- og körfuknattleiksdeilda Keflavíkur fagna samningnum og hlakka til samstarfsins við Verne Global.





