Fréttir

Fyrirspurnafaraldur hjá minnihlutanum
Guðný Birna Guðmundsdóttir og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir eru oddvitar minnihlutaflokkanna í Bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Samfylkingar og Framsóknar.
Þriðjudagur 3. nóvember 2026 kl. 20:26

Fyrirspurnafaraldur hjá minnihlutanum

Samkvæmt samantekt skjaladeildar Reykjanesbæjar hefur skriflegum fyrirspurnum minnihluta bæjarstjórnar í Reykjanesbæ fjölgað um 850% á fyrstu fimm mánuðum yfirstandandi kjörtímabils, samanborið við sama tímabil síðasta kjörtímabils.

„Það er því óhætt að segja að nokkurs konar fyrirspurnarfaraldur sé brostinn út hjá Samfylkingunni og Framsókn í Reykjanesbæ sem eru nú í minnihluta,“ sagði Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ síðdegis.

Í ljósi þessa hefur meirihlutinn lagt til að framvegis verði sérstaklega haldið utan um þann vinnutíma sem starfsmenn sveitarfélagsins verja í að svara fyrirspurnum kjörinna fulltrúa. Samhliða birtingu svara verði jafnframt birtur áætlaður launakostnaður við úrvinnslu þeirra, þannig að skattgreiðendur geti séð hvernig fjármunum þeirra er varið.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hér að neðan fylgir bókun meirihlutans í heild sinni:

„Skjaladeild Reykjanesbæjar hefur tekið saman upplýsingar um fjölda fyrirspurna og spurninga minnihlutans í bæjarstjórn, bæjarráði og fagráðum á tímabilinu júní til október 2026, samanborið við sama tímabil árið 2022. Vægast sagt benda niðurstöðurnar til þess að nokkurs konar fyrirspurnarfaraldur sé á ferðinni hjá ákveðnum aðilum, sem minnir helst á vinnubrögð Pírata á Alþingi fyrir fáeinum árum.

Þessi mikla fjölgun fyrirspurna hefur í för með sér verulegt viðbótarálag á starfsmenn sveitarfélagsins. Að baki skriflegum svörum liggur oft umfangsmikil vinna við upplýsingaöflun, samantektir, útreikninga og yfirferð gagna. Sá tími er ekki ótakmörkuð auðlind og fer óhjákvæmilega frá öðrum verkefnum sem starfsfólki sveitarfélagsins er ætlað að sinna í þágu bæjarbúa.

Ekki liggur fyrir heildstætt yfirlit yfir þann tíma og kostnað sem farið hefur í að svara fyrirspurnum kjörinna fulltrúa, en ætla má að kostnaðurinn sé umtalsverður. 

Meirihlutinn leggur því til að hér eftir verði haldið sérstaklega utan um þann vinnutíma sem fer í að svara formlegum fyrirspurnum kjörinna fulltrúa, sama hvort um er að ræða kjörna fulltrúa frá meirihluta eða minnihluta. Samhliða birtingu svara verði birt yfirlit yfir þann tíma sem fór í undirbúning þeirra og áætlaðan launakostnað sem af því hlýst, enda eiga skattgreiðendur rétt á að vita hvernig fjármunum þeirra er varið.

Meirihlutinn leggur ríka áherslu á gagnsæi í stjórnsýslu Reykjanesbæjar og virðir mikilvægan rétt minnihlutans til upplýsingaöflunar og lýðræðislegs aðhalds. Meirihlutinn telur eðlilegt að minnihlutinn velti því fyrir sér hvort allar þær fyrirspurnir sem lagðar eru fram kalli á umfangsmikla skriflega úrvinnslu eða hvort afla megi hluta upplýsinganna með einfaldari hætti.“

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100