Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Aðsent

Miklu meira en bara jólatónleikar
Mánudagur 2. nóvember 2026 kl. 15:14

Miklu meira en bara jólatónleikar

Níu manna hljómsveit, 20 einsöngvarar og 50 manna kór munu fylla sviðið í Stapa í Hljómahöll þann 9. desember þegar Kór Njarðvíkurkirkju heldur árlega góðgerðarjólatónleika sem að þessu sinni hafa fengið yfirheitið „Heyrið óma hátt um jörð“. Allur ágóði tónleikanna rennur til söfnunar á nýju brjóstaskimunartæki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Kórinn hefur heitið einni milljón króna til söfnunarinnar og ætlar heldur betur að leggja allt í sölurnar til að standa við það loforð.

Kór Njarðvíkurkirkju hefur vaxið mikið undanfarin ár og með fjölgun kórfélaga hafa verkefnin orðið sífellt fjölbreyttari og viðameiri. Jólatónleikarnir hafa lengi verið einn af hápunktum starfsársins en í ár verða þeir teknir upp á nýtt stig!

Það verður sannkölluð jólatónlistarveisla í Stapa þar sem öllu verður til  tjaldað. Auk fjölmenns kórsins mun níu manna hljómsveit sjá um undirleik og hvorki fleiri né færri en 20 einsöngvarar úr röðum kórfélaga fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. Efnisskráin verður fjölbreytt, allt frá fallegum og hátíðlegum jólalögum til kraftmikilla útsetninga þar sem ekkert verður gefið eftir.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Að baki tónleikunum liggur gríðarleg vinna. Um 60 sjálfboðaliðar koma að undirbúningi og framkvæmd, auk hljóðfæraleikara, tæknifólks og annarra samstarfsaðila. Það er því óhætt að segja að um sé að ræða langstærsta verkefni sem kórinn hefur ráðist í.

Söfnun sem stendur kórnum sérstaklega nærri

Ákvörðunin um að láta ágóða tónleikanna renna til kaupa á brjóstaskimunartæki fyrir HSS á sér djúpar rætur innan kórsins.

Síðastliðinn vetur greindist ein í hópnum, Guðný Pála Rögnvaldsdóttir, með brjóstakrabbamein. Við tók erfitt tímabil rannsókna og meðferðar, en þegar hún greindist setti hún sér eitt ákveðið markmið: að geta staðið með kórnum og sungið á vortónleikum, og það gerði hún svo sannarlega.

Hún söng ekki aðeins með kórnum heldur steig hún einnig fram og deildi sögu sinni með tónleikagestum. Sú stund hafði djúp áhrif á kórfélagana sem höfðu fylgst með baráttu hennar og stutt hana í gegnum veikindin.

En þar með var ekki öll sagan sögð.

Eftir tónleikana setti Guðný sér það markmið að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og kórinn lét sig auðvitað ekki vanta. Sumir hétu á hana, aðrir hvöttu hana áfram af hliðarlínunni og enn aðrir reimuðu á sig hlaupaskóna og hlupu með henni.

Á Ljósanæturgospeltónleikum kórsins í september gat hún síðan deilt enn einum áfanganum með kórnum og tónleikagestum, hún hafði lokið lyfjameðferðinni.

Nú, þegar jólatónleikarnir nálgast, hafa enn fleiri góð tíðindi borist. Samkvæmt nýjustu skoðun er hún krabbameinslaus og í lok nóvember klárar hún síðustu geislameðferðina sína.

Árið hefur því verið viðburðaríkt hjá Kór Njarðvíkurkirkju, ekki aðeins í tónlistarlegum skilningi heldur líka á persónulegum nótum. Stórir áfangar í starfi kórsins hafa fléttast saman við baráttu og sigra Guðnýjar Pálu.

Frá því að setja sér það markmið að geta sungið á vortónleikum, yfir í að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og fagna lokum meðferðar á Ljósanótt, hefur hún sýnt mikinn styrk og þrautseigju. Á sama tíma hefur kórinn staðið þétt við bakið á henni og með jólatónleikunum í desember lokast ákveðinn hringur. Það sem hefur verið svo stór hluti af lífi kórfélaganna síðasta árið verður nú að sameiginlegu verkefni þar sem þau vilja láta gott af sér leiða fyrir samfélagið allt.

Einstök samstaða um kaup á brjóstaskimunartæki

Kórinn er langt frá því að vera einn um að láta þetta mikilvæga málefni varða.

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) standa um þessar mundir fyrir söfnun til kaupa á nýju brjóstaskimunartæki fyrir HSS, þar sem markmiðið er að safna 50 milljónum króna. Söfnunin hefur fengið frábærar viðtökur og samkvæmt stöðunni 28. október höfðu framlög og fyrirheit þegar náð nærri 39 milljónum króna.

Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar hafa lagt verkefninu lið og sýnt hvað hægt er að gera þegar samfélag tekur höndum saman um sameiginlegt markmið.

Með nýju tæki á HSS verður hægt að bæta aðgengi kvenna á Suðurnesjum að brjóstaskimun í heimabyggð. Það skiptir miklu máli, ekki síst í ljósi þess að þátttaka kvenna í brjóstaskimunum hefur verið lægri á Suðurnesjum en annarsstaðar á landinu.

Við undirbúning tónleikanna hafa kórfélagar sjálfir fundið sterkt fyrir þeirri samstöðu sem ríkir í bænum. Fjölmörg fyrirtæki í Reykjanesbæ hafa tekið vel í málaleitanir kórsins og boðið fram aðstoð til að gera tónleikana að veruleika. Sá stuðningur skiptir sköpum þegar ráðist er í tónleikahald af þessari stærðargráðu, enda er markmiðið ekki aðeins að bjóða upp á glæsilega jólatónlistarveislu heldur að láta sem mest renna til söfnunarinnar.

Kórfélagar eru afar þakklátir fyrir þann meðbyr sem verkefnið hefur fengið og vonast til að Suðurnesjamenn fjölmenni í Hljómahöll og hjálpi þeim að ná markmiðinu.

Þegar svo margir hafa þegar lagt sitt af mörkum til að bæta heilbrigðisþjónustu á svæðinu finnst kórfélögum sérstaklega ánægjulegt að geta nýtt það sem þau gera best, að syngja saman, til að leggja verkefninu lið.

Miðasala hefst 3. nóvember

Jólatónleikarnir „Heyrið óma hátt um jörð“ fara fram miðvikudaginn 9. desember í Stapa í Hljómahöll.

Miðasala hefst þriðjudaginn 3. nóvember klukkan 10 á Tix.is. Almennt miðaverð er 5.500 krónur en miðar fyrir börn, eldri borgara og öryrkja kosta 3.500 krónur.

Kór Njarðvíkurkirkju vonast til að sjá sem flesta á tónleikunum, enda er stefnt að því að fylla ekki aðeins salinn af tónlist og jólastemningu heldur leggja um leið mikilvægu samfélagsmáli lið.

Kórfélagar hafa að lokum skýr skilaboð til Suðurnesjamanna:

„Við ætlum að þenja brjóstin, fylla Hljómahöll af söng og láta óma hátt um jörð að konur á Suðurnesjum eigi að geta sótt brjóstaskimun í heimabyggð.“

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100