25 milljórnir króna til íþróttastarfs á Suðurnesjum
Hagnaður samstæðu Kaupfélags Suðurnesja (KSK) fyrstu 7 mánuði ársins nam 633 milljónum króna og bókfært eigið fé félagsins nemur um 9 milljörðum króna. Þetta kom fram á haustfundi fulltrúaráðs félagsins hinn 29. október sl. Á fundinum flutti Sigurbjörn Gunnarsson, formaður félagsins, skýrslu um starfsemina á árinu og Brynjar Steinarsson, framkvæmdastjóri dótturfélagsins, KSK eigna, gerði grein fyrir rekstri þess félags.
Á fundinum voru afhentir styrkir sem Kaupfélagið veitir í ár til íþróttastarfs á Suðurnesjum, samtals að fjárhæð 25 milljónir króna. Þau félög sem hlutu styrkina eru Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, Ungmennafélagið Njarðvík, Ungmennafélag Grindavíkur, Knattspyrnufélagið Reynir, Sandgerði, Knattspyrnufélagið Víðir, Garði og Ungmennafélagið Þróttur, Vogum. Fulltrúar félaganna voru mættir á fundinn og veittu þeim viðtöku.
Kaupfélag Suðurnesja á sér djúpar rætur á Suðurnesjum, stofnað 1945, og hefur starfsemi þess og dótturfélaga í gegnum tíðina verið nátengd atvinnulífi og samfélagi Suðurnesja. Töluverðar breytingar hafa verið á starfseminni á síðustu árum en á árinu 2025 sameinaðist dótturfélagið Samkaup hf. inn í Dranga hf. sem í dag rekur auk Samkaupa, Orkuna, Lyfjaval, Löður og fleiri fyrirtæki. Kaupfélagið á nú um 18% hlut í Dröngum. Kaupfélagið á einnig að fullu fasteignafélagið KSK eignir ehf. Á þessu ári seldu KSK eignir 25 fasteignir, einkum verslunarhús, sem staðsett eru víðsvegar um landið og nýlega var undirritaður samningur um kaup KSK eigna á Njarðarvöllum 2 sem hýsir hjúkrunarheimilið Nesvelli. Þessar breytingar á fasteignasafni félagsins eru liður í að byggja upp traust og fjölbreytt fasteignasafn til framtíðar, með aukinni áherslu á fjárfestingar á heimsvæði félagsins. Jafnframt endurspegla þau áherslur móðurfélagsins Kaupfélags Suðurnesja um að vera öflugur þátttakandi í atvinnulífi og samfélagi á Suðurnesjum og stuðla að áframhaldandi uppbyggingu svæðisins.






