Ferðaþjónustan - Úr öskunni í eldinn
Árið er 2010, Íslendingar nýbúnir að ganga í gegnum efnahagskreppu, goslok í Eyjafjallajökli nýafstaðin og margir sem muna betri tíð. Sprettan var hins vegar góð það árið fyrir bændur, ótrúlegt en satt, og þegar uppi var staðið blessaðist þetta svo sem allt saman. Hugsunarháttur landans var enda heldur klassískur: þetta reddast, eftir goslok, sem og það gerði. Eyjafjallajökull vakti heimsathygli þegar öskufall úr gosinu stoppaði flugumferð í Evrópu og auðvitað í ljósi þess hve torvelt nafn jökulsins reyndist í framburði útlendinga. Evrópubúar og aðrir gátu skemmt sér konunglega yfir kostulegum hrakförum fréttamanna og viðmælenda þeirra, en á meðan gosinu stóð voru erlendir fréttamenn alls staðar að úr heiminum staddir hér á landi til þess að flytja fréttir af þessum merka atburði. Íslendingar uppskáru vel í formi ókeypis landkynningar ef svo má að orði komast.
Upprisan úr öskunni
Úr öskunni varð verkefnið „Inspired by Iceland“ til, verkefni sem gekk út á það að snúa vörn í sókn. Í kjölfar alls þessa og hagfelldra skilyrða tók ferðaþjónustan stakkaskiptum og úr varð ein af meginstoðum efnahags okkar Íslendinga, okkar stærsta útflutningsgrein. Ferðamenn flykktust til Íslands í stórum stíl, og gera enn, til þess að skoða þetta fallega land okkar. Árið 2025 sóttu tæplega 2,3 milljónir ferðamanna Ísland heim og ferðaþjónustan stóð fyrir um 9% af verðmætasköpun landsins. Frá árinu 2010 höfum við Íslendingar verið einstaklega útsjónarsöm, okkur tókst fyrst og fremst með einstaklingsframtakinu og seiglu að byggja upp ferðaþjónustuna hratt og vel. Við sköpuðum þennan jarðveg og höfum uppskorið samkvæmt því.
Ferðaþjónustan hefur ekki aðeins skapað störf og skilað þjóðarbúinu umtalsverðum gjaldeyristekjum, hún hefur líka auðgað þá þjónustuflóru sem blasir við Íslendingum þegar þeir ferðast um landið. Segja má að ferðaþjónusta sé einhver sú farsælasta byggðastefna sem sést hefur hér á landi. Þá hefur atvinnugreinin sömuleiðis aukið tekjur ríkissjóðs svo um munar enda leggur hún eins og aðrar mikið til samfélagsins í formi skattgreiðslna, allt frá tekjuskatti til fasteignaskatta. Árið 2024 var skattspor ferðaþjónustunnar tæplega 200 milljarðar króna skv. skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir Samtök ferðaþjónustunnar. Um þriðja hver króna af sköpuðum gjaldeyristekjum ferðaþjónustunnar skilaði sér þannig til samfélagsins í formi skatta og gjalda, til ríkis og sveitarfélaga. Skattspor greinarinnar er augljóslega umfangsmikið.
Til mikils að vinna
Rétt eins og aðrar útflutningsgreinar er íslensk ferðaþjónusta í ötulli alþjóðlegri samkeppni og mikilvægt að gæta þess í hvívetna að greininni sé skapað rekstrarumhverfi sem gerir henni kappið kleift. Þar skiptir regluverk máli, skattalegt umhverfi og fleira. Meðal annars vegna þessa er í dag innheimtur 11% virðisaukaskattur af ferðaþjónustu hér á landi en ekki 24%. Er það í línu við það sem t.a.m. viðgengst á Norðurlöndunum en bæði Noregur og Svíþjóð leggja 12% virðisaukaskatt á ferðaþjónustu og Finnland 13,5%.
Ríkisstjórnin hefur nú hins vegar sýnt á spilin hvað ferðaþjónustuna varðar með framlögðu fjárlagafrumvarpi og ætlar sér að ná 10 til 11 milljörðum aukalega í ríkissjóð á einu bretti á næsta ári út úr atvinnugreininni. Undir yfirskyni hallalausra fjárlaga. Flestum þykir þó orðið morgunljóst að fjárlögin verða ekki hallalaus þegar upp er staðið. Hverju sem því líður verður að gjalda varhug við þessum áformum, ekki vegna þess að stefnt sé að hallalausum fjárlögum, þvert á móti, heldur vegna þeirra áhrifa sem aukin skattheimta getur haft í för með sér. Samkeppnishæfni greinarinnar er lögð að veði til þess að skila hallalausum fjárlögum. Ferðaþjónustan er ekki aðeins okkar stærsta útflutningsgrein, heldur einnig ein af okkar bestu byggðastefnum. Fjöldi starfa í ferðaþjónustu hefur t.a.m. fjórfaldast á Suðurlandi og þrefaldast á Suðurnesjum frá 2008. Aukningin er minni í öðrum landshlutum en þó talsverð enda munar sannarlega um hvert nýtt starf.
Það er ekkert launungarmál að skattar og aðrar opinberar álögur letja einkaframtakið og geta skapað óheppilega hvata, dregið úr fjárfestingu og verðmætasköpun. Þetta á við um allar atvinnugreinar. Illa ígrunduð gjaldtaka mun svo augljóslega hafa enn meira íþyngjandi afleiðingar. Áform ríkisstjórnarinnar nú munu ekki leiða til þess að ferðamenn dreifist jafnar um landið né yfir árið. Loforð um að þessir fjármunir komi til með að renna í innviðauppbyggingu á vinsælum ferðaþjónustustöðum, vegasamgöngur eða annað líklegt til vinsælda meðal almennings, eru á sandi byggð ef tekið er mið af afrekaskrá ríkisstjórnarinnar til þessa. Þetta mun einfaldlega hverfa í hítina og standa straum af kostnaðarsömum kosningaloforðum Flokks fólksins til þess að halda ríkisstjórninni saman.
Atvinnuvegaráðherra hefur ekki gengið fram með góðu fordæmi í sínum málaflokkum. Af verkum af dæma má sjá að ráðherrann, Hanna Katrín Friðriksson, og ríkisstjórnin í heild virðast hafa meiri áhuga á gjaldtöku og skattahækkunum en að tryggja blómlega atvinnu- og verðmætasköpun, sem á endanum skilar sér í sameiginlega sjóði og stendur undir velferð okkar allra. Árangurinn sem okkur Íslendingum og íslenskri ferðaþjónustu hefur tekist að ná frá árinu 2010, frá goslokum í Eyjafjallajökli, er aðdáunarverður og langt í frá sjálfsagður; honum má ekki kasta á glæ.
Ingveldur Anna Sigurðardóttir
Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi








