Íslandsmeistarar Grindavíkur steinlágu fyrir 1.deildarliði Blika í VÍS bikarnum
Íslandsmeistarar Grindavíkur eru dottnir út úr VÍS bikarkeppni karla í körfubolta eftir óvænt tap gegn 1.deildarliði Breiðabliks í 32-liða úrslitum keppninnar í kvöld. Lokatölur urðu 109-85 og sigur Blika var afar sannfærandi. Grindvíkingar mættu með DeAndre Kane sem er nýkominn til landsins og hann var stigahæstur þeirra með 22 stig en það dugði ekki til. Sannarlega óvænt úrslit.
Blikar yfirspiluðu Íslandsmeistarana í fyrstu þremur leikhlutunum og sýndu þeim enga miskunn. Bllikar náðu forystu í fyrstu þremur leikhlutunum og leiddu með tuttugu og sex stigum fyrir fjórða leikhluta, hreint ótrúlegt. Grindvíkingar unnu lokaleikhlutann með tveimur stigum sem dugði skammt. Lokatölur 109-85, tuttugu og fjögurra stiga sigur 1. deildarliðsins.
Auk Kane skoraði Arnór Tristan Helgasonn 15 stig og Unnsteinn Rúnar Kárson 14.
Hjá Blikum skoraði Adrian Darren 27 stig, tók 9 fráköst og gaf 11 stoðsendingar.
Breiðablik-Grindavík 109-85 (28-21, 32-27, 31-17, 18-20)
Breiðablik: Adrian Darren MCintyre 27/9 fráköst/11 stoðsendingar, Viktor Máni Steffensen 17, Hugo Ivan Catani 15, Vojtéch Novák 15/8 fráköst, Orri Guðmundsson 14, Eysteinn Bjarni Ævarsson 11/11 fráköst, Freyr Jökull Jónsson 5, Einar Örvar Gíslason 4/4 fráköst, Jökull Otti Þorsteinsson 1, Veigar Elí Grétarsson 0, Matthías Örn Þórólfsson 0, Dagur Kort Ólafsson 0.
Grindavík: Deandre Donte Kane 22/4 fráköst, Arnór Tristan Helgason 15, Unnsteinn Rúnar Kárason 14, Jeremy Raymon Pargo 13/5 stoðsendingar, Mirza Bulic 11/10 fráköst, Ragnar Örn Bragason 7/7 fráköst, Valur Orri Valsson 3/4 fráköst/5 stoðsendingar, Nökkvi Már Nökkvason 0, Daniel Mortensen 0, Jason Helgi Ragnarsson 0, Patrekur Atlason 0, Kristófer Breki Gylfason 0/7 fráköst.
Dómarar: Gunnlaugur Briem, Ingi Björn Jónsson, Guðmundur Ragnar Björnsson
Áhorfendur: 557








