Íþróttir

Fúlt tap Keflvíkinga gegn KR - 6. sætið staðreynd
Arnór Ingvi á fullri ferð með boltann, yngri bróðirinn, Viktor Árni fylgir honum eins og skugginn. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 17. október 2026 kl. 16:31

Fúlt tap Keflvíkinga gegn KR - 6. sætið staðreynd

Keflvíkingar urðu að lúta í gras í tímamótaleik gegn KR-ingum á HS Orku-vellinum í úrslitakeppni efri hluta Bestu-deildar karla í knattspyrnu í gær. Lokatölur urðu 2-3 en Vesturbæjarliðið skoraði sigurmarkið á næst síðustu mínútu venjulegs leiktíma.

Eftir slakan fyrri hálfleik hjá heimamönnum, sem nú hafa einungis fengið eitt stig í fjórum leikjum í úrslitakeppninni, og voru 0-2 undir í hálfleik mættu þeir eins og nýtt lið í síðari hálfleik. Tvær skiptingar virkuðu greinilega strax vel hjá heimamönnum en Frans Elvarsson kom inn á fyrir Elvis Okello og Eiður Orri Ragnarsson fyrir Alpha Conteh. Eiður Orri lét strax að sér kveða þegar hann gaf á markahrókinn Stefan Ljubicic inni í vítateig KR. Stebbi tók við boltanum og lyfti honum snyrtilega yfir markvörð KR og heimamenn voru komnir á blað, 1-2.

Aðeins fjórum mínútum síðar var Eiður Orri aftur á ferðinni, nú með boltann úti vinstra megin og sendi hann fyrir markið. Þar kom Dagur Ingi Valsson aðvífandi og kom boltanum í netið, allt orðið jafnt, 2-2.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Liðin skiptust á að sækja en þegar leið á seinni hálfleikinn gerðu heimamenn harða hríð að marki KR án þess að ná að nýta sér fjölmörg marktækifæri. Það var síðan gegn gangi leiksins að KR skyldi skora sigurmarkið. Það kom á 89. mínútu en þá skoraði Gabríel Hrannar Eyjólfsson eftir stoðsendingu frá fyrrverandi Keflvíkingnum, Arnóri Ingva Traustasyni.

Eftir tapið er ljóst að Keflavík mun enda í 6. sæti hvernig sem síðasti leikurinn gegn ÍA fer um næstu helgi.

Í leiknum í Keflavík í dag mættust bræður hvor í sínu liðinu. Arnór Ingvi Traustason, sem gekk til liðs við KR fyrir þetta tímabil eftir atvinnumennsku í útlöndum, þurfti að kljást við fjórtán árum yngri bróður sinn, Viktor Árna Traustaon. Það munu vera ár og dagar síðan bræður mættust á Keflavíkurvelli í efstu deild en sá yngri, sem var að leika sinn annan byrjunarliðsleik með heimamönnum, stóð sig með mikilli prýði en sama er hægt að segja um þann eldri, sem hefur verið einn af lykilmönnum KR á þessari leiktíð.

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur stóð sig einna best í liði heimamanna í dag og hefur verið jafnbesti leikmaðurinn að undanförnu. Eiður Orri sem er ásamt fleirum á leið frá Keflavík, kom öflugur inn í síðari hálfleik en Víkingar keyptu hann nýlega og hann mun leika með þeim á næstu leiktíð. Keflavíkurliðið sýndi allt aðra frammistöðu í síðari hálfleik og flestir sýndu sitt rétta andlit. Stefan Ljubicic skoraði sitt tólfta mark og án efa er þetta eitt hans besta tímabil frá því hann hóf að leika fótbolta. Hann var ósáttur við dómarann og kvartaði við hann eftir leikinn. Það er alveg hægt að taka undir hans orð en hins vegar er hugarfarið hjá þessum snjalla knattspyrnumanni nokkuð sem hann gæti bætt því ekki vantar hæfileikana. Hann segir í viðtali að hann hafi fengið tilboð frá öðrum liðum og því er óvissa um hans framhald hjá Keflavík eins og fleirum. Ásgeir Orri hefur verið nefndur en Keflvíkingar þurfa að gera allt til að halda honum. Frans Elvarsson, var líklega að leika sinn síðasta leik en hann hefur verið einn af lykilmönnum Keflavíkur undanfarin ár.

„Það er alltaf fúlt að tapa. Ég hefði verið nokkuð sáttur með annað stigið í þessum leik eftir erfiðan fyrri hálfleik því við lékum flottan fótbolta í þeim síðari en svona er fótboltinn,“ sagði Hólmar Örn Rúnarsson aðstoðarþjálfari eftir leikinn.

Keflavík-KR // Besta deild karla // 17. okt. 2026

Bílakjarninn
Bílakjarninn