Hviða
Hviða

Íþróttir

Grindvíkingar misstu niður tíu stiga forskot gegn Val - Kane á leiðinni
Mirza Bulic var stigahæstur Grindvíkinga með 22 stig
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 17. október 2026 kl. 15:46

Grindvíkingar misstu niður tíu stiga forskot gegn Val - Kane á leiðinni

Grindvíkingar máttu sætta sig við 81:74 tap gegn Val á Hlíðarenda í Bónus-deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Grindavík var með tíu stiga forskot í hálfleik en heimamenn sneru leiknum sér í vil með sterkum lokakafla.

Leikurinn var jafn og fjörugur í upphafi. Valsmenn höfðu þriggja stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 29:26, en Grindvíkingar tóku öll völd í öðrum leikhluta. Þeir unnu hann 28:16 og leiddu því 54:45 í hálfleik.

Valsmenn náðu að minnka muninn í þriðja leikhluta en Grindavík hélt þó forystunni og var sex stigum yfir, 68:62, fyrir lokaleikhlutann.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þá hrökk hins vegar allt í baklás í sóknarleik Grindvíkinga. Þeir skoruðu aðeins sex stig á síðustu tíu mínútunum á meðan Valsmenn settu niður 19 stig og tryggðu sér sjö stiga sigur, 81:74. Valur vann því síðari hálfleikinn 36:20.

Mirza Bulic var stigahæstur Grindvíkinga með 22 stig og tók auk þess 19 fráköst. Ragnar Örn Bragason átti einnig góðan leik með 20 stig og sex fráköst og Arnór Tristan Helgason skoraði 13 stig og tók sex fráköst. Unnsteinn Rúnar Kárason bætti við sjö stigum en Valur Orri Valsson og Jeremy Pargo skoruðu sex stig hvor. Pargo gaf jafnframt sjö stoðsendingar.

Þær fréttir bárust fyrir helgina að DeAndre Kane, hinn litríki leikmaður sé á leiðinni til Íslands og muni leika með Grindavík í vetur.

Hjá Val var Pablo Cesar Bertone stigahæstur með 25 stig. Dwayne Lautier-Ogunleye og Kári Jónsson skoruðu 17 stig hvor og Atli Freyr Haraldsson Katrinarson skilaði 16 stigum og 14 fráköstum.

Valur – Grindavík 81:74
Leikhlutar: 29:26, 16:28, 17:14, 19:6.

Stig Grindavíkur: Mirza Bulic 22, Ragnar Örn Bragason 20, Arnór Tristan Helgason 13, Unnsteinn Rúnar Kárason 7, Valur Orri Valsson 6 og Jeremy Pargo 6.

Bílakjarninn
Bílakjarninn