Natasha kveður sviðið
Natasha Anasi-Erlingsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir glæsilegan knattspyrnuferil en hún lék nú síðast hjá Grindavík/Njarðvík. Hún var á hliðarlínunni þegar félagar hennar í liðinu unnu sigur á ÍBV í Bestu-deildinni á gervigrasinu í Reykjanesbæ á föstudagskvöld 2-1.
„Ég ætlaði að hætta eftir þetta tímabil en náði ekki alveg að klára alla leikina í ár. Það munaði litlu,“ sagði hún brosandi en Natasha er barnshafandi og af þeim ástæðum gat hún t.d. ekki tekið þátt í verkefnum landsliðsins nýlega en hún var valin í hópinn.
Natasha skilur eftir sig stór spor í íslenskri kvenna knattspyrnu en hún kom fyrst til Íslands árið 2014 eftir háskólaferil hjá Duke.
Natasha lék 276 leiki á vegum KSÍ í sex félagsliðum. Hún byrjaði hjá ÍBV en lék einnig með Keflavík, Breiðablik og Val og nú síðasta Grindavík/Njarðvík, og skoraði í þeim 68 mörk. Þá lék hún með Brann í Noregi.
Hún á einnig 9 A landsleiki með íslenska landsliðinu og skorað þar 1 mark.
Fyrir leik Grindavíkur/Njarðvíkur og ÍBV í dag voru það þeir Jón Óli Daníelsson þjálfari ÍBV og Gylfi Tryggvason sem veittu henni heiðursgjöf en Jón Óli var einmitt þjálfari ÍBV þegar Natasha hóf sinn atvinnumannaferiI með IBV sumarið 2014, og Gylfi er núverandi þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur.









