Láti þessa stöðu ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna
D-listi og óháðir harma meirihlutaslit í Suðurnesjabæ
D-listi og óháðir í Suðurnesjabæ harma að meirihlutasamstarfi við S-lista sé lokið. Í yfirlýsingu frá framboðinu kemur fram að ágreiningur um vallarmál hafi leitt til slita á samstarfinu. Framboðið telur áhyggjuefni að meirihluti í bæjarstjórn falli í annað sinn vegna þess málaflokks.
D-listi og óháðir telja að besta leiðin til að sameina byggðakjarnana sé að reisa eitt fjölnota íþróttahús á Miðjunni, milli Sandgerðis og Garðs. Slíkt hús myndi nýtast íbúum á öllum aldri og fleiri íþróttafélögum allt árið.
Í yfirlýsingunni er vísað til skýrslu Verkís sem framboðið segir sýna að staðsetning á Miðjunni skapi mest jafnvægi milli byggðakjarnanna. Þá telur framboðið að sú lausn nýti fjármuni bæjarins best til lengri tíma.
Á fundi bæjarráðs 9. september studdu fulltrúar D-lista og óháðra sameiginlega tillögu allrar bæjarstjórnar. Að þeirra sögn var það gert í góðri trú um að tillagan myndi skapa jafnvægi milli kjarnanna. Fljótlega hafi hins vegar komið í ljós að svo væri ekki og því hafi þeir viljað endurskoða ákvörðunina.
Samkvæmt yfirlýsingunni var ekki vilji allra til að vinna úr stöðunni sem þá kom upp og féll meirihlutinn í kjölfarið. Samstarfinu er þó lýst sem að mestu afar jákvæðu og farsælu, þótt það hafi staðið stutt.
Framboðið hvetur kjörna fulltrúa og íbúa til að láta meirihlutaslitin ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna.
„Við hvetjum kjörna fulltrúa jafnt sem íbúa til að láta þessa stöðu ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna og sameinast undir merkjum Suðurnesjabæjar í orði og á borði.“
D-listi og óháðir segjast áfram ætla að vinna af heilindum að hagsmunum allra íbúa, óháð búsetu þeirra innan bæjarins. Haukur Andreasson og Haraldur Helgason undirrita yfirlýsinguna fyrir hönd framboðsins.
Yfirlýsingin í heild sinni:
Yfirlýsing frá D-lista og óháðum í Suðurnesjabæ
vegna slita á meirihlutasamstarfi við S-lista
D-listi og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við S-lista sé lokið. Það er áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum.
Afstaða okkar til þess máls er að besta leiðin til að sameina byggðakjarnana er eitt fjölnota íþróttahús á Miðjunni, milli Sandgerðis og Garðs. Hús sem nýtist öllum íbúum, ungum sem öldnum, og fleiri íþróttafélögum allt árið um kring. Samkvæmt skýrslu Verkís skapar staðsetning á Miðjunni mest jafnvægi milli kjarnanna og slík lausn nýtir fjármuni bæjarins best til lengri tíma.
Á fundi bæjarráðs 9. september studdum við sameiginlega tillögu allrar bæjarstjórnar í góðri trú um að hún myndi skapa jafnvægi milli kjarnanna. Fljótlega kom í ljós að svo var ekki og því vildum við endurskoða ákvörðunina sem leiddu til þess að atburðarás þróaðist á þann hátt að ekki var vilji allra til að vinna úr þeirri stöðu sem upp kom og þar með féll meirihlutinn.
Samstarfið stóð stutt en var að mestu afar jákvætt og farsælt.
Við hvetjum kjörna fulltrúa jafnt sem íbúa til að láta þessa stöðu ekki dýpka gjána milli byggðakjarnanna og sameinast undir merkjum Suðurnesjabæjar í orði og á borði.
D-listi og óháðir munu áfram vinna af heilindum að hagsmunum allra íbúa, hvar sem þeir búa í bænum.
F.h D-listans og óháðra í Suðurnesjabæ
Haukur Andreasson
Haraldur Helgason








