Píeta - mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum
Gulur september er mánuður vitundarvakningar um sjálfsvígsforvarnir. Þótt sérstök áhersla sé lögð á málaflokkinn í september þurfa sjálfsvígsforvarnir að vera í forgrunni allt árið um kring. Sjálfsvígsforvarnir eru sameiginlegt verkefni okkar allra og byggja á þátttöku og samvinnu ólíkra aðila í samfélaginu. Heilbrigðiskerfið, félagsþjónustan, sveitarfélög, skólar, stjórnvöld og félagasamtök gegna þar ólíkum en mikilvægum hlutverkum. Eitt kemur ekki í stað annars.
Gulur september minnir okkur einnig á mikilvægi þess að tala opinskátt um sjálfsvíg, sjálfskaða og sjálfsvígshugsanir. Sjálfsvígshugsanir eru yfirleitt merki um vanlíðan og mikilvægt er að fólk sem er með slíkar hugsanir fái viðeigandi aðstoð fagaðila. Þar getur tíminn skipt miklu máli því við vitum að bið eftir geðheilbrigðisþjónustu getur stundum verið löng og fyrir fólk í vanlíðan er erfitt að bíða eftir aðstoð. Þegar manneskja með sjálfsvígshugsanir finnur styrk til að segja „ég þarf hjálp“ verður hjálpin að vera aðgengileg og hún þarf að vera til staðar þegar hennar er þörf. Þar gegna Píeta samtökin ómetanlegu hlutverki.
Píeta eru lágþröskuldasamtök fyrir fólk sem er með sjálfsvígshugsanir og sjálfsskaða, auk þess sem samtökin veita aðstandendum og syrgjendum stuðning. Fólk getur leitað beint til samtakanna án tilvísun frá heilbrigðisstarfsmanni og manneskja sem kemur til Píeta á kost á meðferð sér að kostnaðarlausu. Það skiptir máli, því fjárhagur á ekki að verða hindrun þegar fólk í alvarlegri vanlíðan leitar sér hjálpar.
Píeta samtökin hafa skapað stað þar sem fólk með sjálfsvígshugsanir getur stigið inn og verið mætt af hlýju, virðingu, mannúð og fagmennsku þegar mest á reynir. Fyrir manneskju sem upplifir að engin von sé framundan getur það skipt sköpum að einhver sé tilbúinn að hlusta, taka vanlíðanina alvarlega og hjálpa viðkomandi að finna aftur von og trú á að líðan og aðstæður geti breyst. Hægt er að hringja í Píeta-símann 1799 og fá stuðning og samtal þegar þörf er á. Stundum getur fyrsta skrefið verið einfaldlega að segja upphátt: „Mér líður illa og ég þarf hjálp.“
Við sjáum jafnframt að þörfin fyrir þjónustuna er mikil. Þeim hefur fjölgað sem leita til Píeta og starfsemi samtakanna hefur vaxið mikið undanfarinn áratug. Það er ekki óalgengt að fólk leiti til samtakanna á meðan það bíður eftir þjónustu annars staðar í kerfinu. Jafnframt eru Píeta samtökin oft fyrsti viðkomustaður fólks þegar það leitar sér aðstoðar vegna sjálfsvígshugsana. Það segir okkur bæði hversu mikil þörfin er og hve mikilvægt er að lágþröskuldaúrræði séu til staðar samhliða annarri geðheilbrigðisþjónustu.
Sérstaða Píeta samtakanna er mikil og sú þjónusta sem hefur verið byggð upp hér á landi er einstök á heimsmælikvarða. Slíku starfi þarf að hlúa að og tryggja að það geti þróast áfram í takt við vaxandi þörf. Þess vegna er mikilvægt að standa vörð um Píeta samtökin og tryggja að þjónustan verði áfram til staðar fyrir þau sem á henni þurfa að halda. Í sjálfsvígsforvörnum getur aðgengi að réttri hjálp á réttum tíma skipt öllu máli.
Í 10 ár hafa Píeta samtökin staðið með fólki á erfiðustu stundum lífsins. Við ætlum að halda því áfram, að glæða von, styðja fólk í gegnum erfiðleikana og hjálpa því að finna leiðina út úr myrkrinu.
Með vonina að leiðarljósi höldum við áfram að skapa rými þar sem enginn þarf að takast einn á við vanlíðan og sársauka. Píeta samtökin standa með fólki á erfiðum stundum og veita stuðning, nærveru og aðstoð þegar mest á reynir.
Píeta er til staðar allan sólarhringinn. Hægt er að fá stuðning og samtal í síma 1799.
Oddný Jónsdóttir,
formaður stjórnar Píeta samtakanna og aðjúnkt við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.






