Börnin okkar eru meira en einkunnir og próf
Þegar við tölum um hvernig grunnskólunum okkar gengur er námsárangur aðeins einn hluti heildarmyndarinnar. Einkunnir og námsárangur skipta auðvitað máli, en líðan barna, skólasókn, tengsl þeirra við skólann og aðgangur að stuðningi skipta ekki síður máli.
Á fundi menntaráðs Reykjanesbæjar 11. september sl. ræddum við meðal annars farsæld barna og vinnu við nýtt mælaborð grunnskólanna. Þar höfum við tækifæri til að horfa á skólastarfið í stærra samhengi.
Gögn um farsæld barna sýna að margt hefur þróast í jákvæða átt í Reykjanesbæ. En þau sýna líka að við þurfum að vera vakandi. Sérstaklega vekur staða yngri barna athygli, þar sem sjá má vísbendingar um minni ánægju í skóla og aukið einelti.
Þetta eru einmitt upplýsingarnar sem við þurfum að sjá og ræða. Ekki til að benda á sökudólga heldur til að geta brugðist fyrr við.
Mælaborð grunnskólanna á að mínu mati ekki að vera eftirlitstæki. Það á að vera umbótatæki og hjálpa okkur að sjá heildarmyndina, námsárangur, líðan, skólasókn, tengsl við skólann og hvort börn sem þurfa stuðning fái hann og hvort sá stuðningur sé að skila árangri.
Þetta skiptir líka máli þegar fjárhagsáætlun næsta árs er ákveðin. Við eigum að fara vel með fjármuni og nýta þá sem best, en um leið verðum við að horfa til þess hvaða áhrif ákvarðanir okkar hafa á þjónustu við börn og fjölskyldur.
Þar skiptir farsældarstarfið miklu máli. Frá gildistöku farsældarlaganna árið 2022 hafa sveitarfélög unnið að því að byggja upp samþættari þjónustu við börn og fjölskyldur, með áherslu á að grípa fyrr inn í þegar þörf fyrir stuðning kemur fram. Mikilvægt er að þeirri uppbyggingu verði haldið áfram og að nauðsynlegt fjármagn fylgi þeim verkefnum og skyldum sem sveitarfélögunum er ætlað að sinna.
Barn sem fær rétta aðstoð snemma getur þurft minni og flóknari þjónustu síðar. Öflug skólaþjónusta, farsældarstarf, góð frístundaþjónusta og lágþröskuldaúrræði fyrir börn og ungmenni eru því ekki bara útgjöld. Þau eru fjárfesting í börnunum okkar og samfélaginu til framtíðar.
Snemmtæk íhlutun snýst einmitt um að bíða ekki eftir því að vandinn verði orðinn stór og flókinn áður en við bregðumst við. Því fyrr sem við sjáum að barn þarf á aðstoð að halda, því fyrr getum við gripið inn í. Markmiðið hlýtur að vera að sjá börnin, grípa þau þegar þau þurfa á okkur að halda og veita þeim réttan stuðning á réttum tíma.
Díana Hilmarsdóttir
bæjarfulltrúi Framsóknar og fulltrúi í menntaráði Reykjanesbæjar







