Fréttir

Öflugt skógræktarverkefni til framtíðar í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 16. september 2026 kl. 09:50

Öflugt skógræktarverkefni til framtíðar í Reykjanesbæ

Rúmlega 210 þúsund plöntur á Njarðvíkurheiði

Framtíðarútivistarsvæði íbúa Reykjanesbæjar fékk fljúgandi start þegar ráðist var í víðfeðma gróðursetningu á Njarðvíkurheiði 1. september síðastliðinn. Skógræktarverkefnið er á forræði Reykjanesbæjar en unnið í nánu samstarfi og með fjárhagslegum styrk frá tæknifyrirtækjunum atNorth og Crusoe.

Dagurinn hófst með kaffi og kleinum klukkan níu um morguninn þar sem fólk kom saman og sagt var stuttlega frá verkefninu. Í kjölfarið var hafist handa við gróðursetninguna í frábæru veðri. Um 300 skólabörn ásamt kennurum, fulltrúum og starfsfólki Reykjanesbæjar mættu á svæðið til að taka þátt í að gróðursetja framtíð sína.

Heildaráætlun verkefnisins gerir ráð fyrir að gróðursettar verði rúmlega 210.000 plöntur til ársins 2030, en þar af munu atNorth og viðskiptavinur þeirra, Crusoe, standa straum af 65.000 plöntum á næstu fimm árum. Markmiðið er að stuðla að vistheimt, græða upp móa og uppblásin svæði og búa til öflugan „gróðurtrefil“ fyrir ofan bæinn sem veitir bæði skjól og betri náttúru.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Samfélagsleg ábyrgð og þekking sem flæðir til Norðurlanda

Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri rekstrar hjá atNorth, segir samstarfið við Reykjanesbæ eiga sér nokkurra ára sögu og að grunnurinn að þessu skógræktarverkefni hafi verið lagður í fyrra þegar fyrstu 2.000 plöntunum var komið í jörðu.

„Við erum búin að vinna til fjölda ára með Reykjanesbæ í uppbyggingu gagnavers okkar á Fitjum, sem heitir ICE02,“ segir Erling og undirstrikar að þátttaka í samfélaginu skipti fyrirtækið og viðskiptavini þess öllu máli:

„Alveg frá fyrsta degi þegar Crusoe kom til landsins, fyrir tæpum þremur árum, var alveg ljóst að það vildi vinna með nærsamfélaginu. Það er hjartað hjá atNorth. Þess vegna skipti það okkur miklu máli að gera þetta verkefni, að ákveða að planta 65.000 plöntum á Njarðvíkurheiðinni.“

Erling benti á að starfsemi gagnaversins hefði víðtæk og jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Yfir helmingur starfsfólks gagnaversins býr í nokkurra mínútna fjarlægð og hundruð verktaka hafa unnið á svæðinu á síðustu árum. Þá hefur uppbyggingin styrkt innviði á borð við raforku og fjarskipti, auk þess sem fjórði sæstrengurinn er væntanlegur til landsins vegna svona starfsemi.

Að sögn Erlings er staðbundin þekking starfsfólks á svæðinu farin að vekja athygli út fyrir landsteinana: „Starfsfólkið sem býr í Reykjanesbæ er farið að kenna fólki á Norðurlöndunum hvernig við vinnum í kringum þennan gervigreindarbúnað, tökum sem dæmi þennan gervigreindarbúnað.“

Stórt skógarbelti sem tengir saman svæði

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fagnaði frumkvæði fyrirtækjanna og sagði þau skaffa plönturnar en bærinn muni halda utan um svæðið og sjá til þess að það vaxi og dafni. Verkefnið sé eitt af mörgum jákvæðum samfélagsverkefnum öflugra fyrirtækja á svæðinu.

„Þetta er svolítið að frumkvæði fyrirtækjanna að þau vilja láta gott af sér leiða í því samfélagi sem þau eru í,“ segir Vilhjálmur og undirstrikar mikilvægi þess að fá yngri kynslóðina með í ferlið:

„Hér koma 300 leikskóla- og skólabörn í dag og taka þátt í þessum vexti og þau munu fá að njóta þess í sinni framtíð og með sínum börnum svo að hér verður öflugt og fallegt útivistarsvæði.“

Bæjarstjóri benti á að til framtíðar væri horft til þess að tengja saman Njarðvíkurskóg og Sólbrekku í eitt samfellt skógarbelti. Þótt það taki tíma fyrir trén að vaxa mun skógurinn skapa stórt útivistarsvæði og veita bænum mikilvægt skjól um ókomna tíð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn