Dragnótaveiðar í Faxaflóa hafnar
Þá er maður farinn í enn eina ferðina og núna staddur á Hellu. Ekki mikið hægt að finna tengingu við Suðurnesin og útgerð við Hellu, enda Hella ekki við sjó.
Ef við förum frá Hellu og út í sjó þá getum við fundið Grímsa GK eða svona næstum því, vegna þess að síðan í sumar hefur báturinn verið á netaveiðum meðfram suðurströndinni alveg austur að Ingólfshöfða og gengið mjög vel. Var Grímsi GK með í ágúst 198 tonn í aðeins níu róðrum og mest 36 tonn í einni löndun. Uppistaðan í þessum afla var ufsi.
Grímsi GK er byrjaður á ufsanum núna í september og hefur landað um 30 tonnum í tveimur róðrum.
Og loksins eru komnir línubátar á veiðar frá Suðurnesjunum fyrir utan stóru Vísisbátana, en Geirfugl GK hóf veiðar frá Sandgerði núna þennan dag sem þessi pistill er skrifaður og kom með 2,8 tonn í land í einni löndun.
Á línuslóðunum sem eru svo til norðvestur út frá Sandgerði hafa tveir bátar verið á veiðum núna frá miðjum ágúst og í september en báðir hafa landað á Arnarstapa. Þetta eru Særif SH og Kristinn SH. Reyndar má alveg búast við að Særif SH komi líklega til Sandgerðis en þegar báturinn hefur verið við línuveiðar þarna fyrir utan þá hefur hann komið á land í Sandgerði með aflann.
Annars eru dragnótaveiðar í Faxaflóa hafnar og eru núna fimm bátar á veiðum í flóanum. Eru þetta Stapafell SH sem hefur landað 32 tonnum í 2 róðrum og Aðalbjörg RE sem er með 40 tonn í 4 róðrum, báðir í Reykjavík.
Hafdís SK sem er með 68 tonn í 5 og mest 22 tonn í Hafnarfirði. Í Sandgerði er Benni Sæm GK sem er með 65 tonn í 4 og mest 21 tonn og Siggi Bjarna GK sem er með 44 tonn í 4 róðrum.
Í Sandgerði eru reyndar líka þrír aðrir dragnótabátar, en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera of langir til þess að mega veiða í Faxaflóanum. Þetta eru Margrét GK sem er með 7 tonn í 1, Maggý VE 7 tonn í 1 og Sigurfari GK sem er með 50 tonn í 3 og mest 36 tonn í einni löndun.
Að ofan var minnst á Geirfugl GK en svo til allir aðrir dagróðrarbátar á línu eru úti á landi og á Skagaströnd eru núna þrír bátar frá Stakkavík ehf. Það eru Gulltoppur EA sem hefur landað 18 tonnum í fjórum róðrum, Guðbjörg GK með 28 tonn í fjórum róðrum og mest 14,5 tonn, Hópsnes GK með 28 tonn í sex róðrum og mest 7 tonn og á Siglufirði er Óli á Stað GK með 51 tonn í fimm róðrum og mest 20 tonn í einni löndun. Allur afli af þessum bátum er ekinn suður til vinnslu og línan sjálf er að mestu stokkuð upp í Sandgerði og Gulltoppur EA er eini balabáturinn af þessum bátum og beitt er af honum í Sandgerði.
Fyrir austan eru líka nokkrir bátar og flestir eru að landa í Neskaupstað. Þar er t.d. Fjölnir GK með 66 tonn í 6 og mest 19,2 tonn. Margrét GK með 72 tonn í 6 og mest 18,2 tonn. Gísli Súrsson GK með 45 tonn í 5 og mest 18 tonn. Auður Vésteins SU með 47 tonn í 5 og mest 16 tonn.
Núna eru svo til flestir færabátanna komnir í stopp og sumir eru komnir í vetrarlegu í slippnum í Njarðvík, en það eru þó nokkrir færabátar sem munu verða á veiðum í haust og vetur og þennan dag sem þessi pistill var skrifaður voru fimm færabátar á ufsaveiðum í Röstinni: Ósk KE, Kristín GK, Dímon GK, Hawkerinn GK og Guðrún GK. Hawkerinn GK og Guðrún GK náðu báðir yfir eitt tonn af ufsa, og við megum eiga von á að sjá þessa báta á veiðum í haust og vetur.








