Kvótaáramótin nálgast
• Pistill úr Víkurfréttum 29. ágúst 2026
Núna er orðið mjög stutt til áramótanna. Reyndar ekki áramótanna þar sem við skjótum upp tonnum af flugeldum og fögnum nýju ári, nei, þessi áramót eru aðeins öðruvísi og þeim kannski ekki fagnað eins mikið og hin áramótin, því að núna 1. september hefst nýtt ár, kvótaár, en fiskveiðiárin miðast við 1. september til 31. ágúst ár hvert.
Það má segja að útgerðin á Suðurnesjum sé að komast í fullan gang aftur og dragnótabátunum hefur fjölgað því að núna er Maggý VE komin aftur til Sandgerðis, en báturinn landaði síðast í Sandgerði í lok maí og fór síðan til Vestmannaeyja og fór þá í vélaskipti sem framkvæmd voru af starfsmönnum Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum.
Reyndar um miðjan júlí þá kom upp smávegis eldur í vélarrúmi Maggýjar VE þegar báturinn lá við bryggju í Vestmannaeyjum, en slökkvilið var fljótt á staðinn og slökkti eldinn og reykræsti vélarrúmið á skömmum tíma. Skemmdir urðu ekki miklar en reykur var um allt.
Allt gekk þá vel að lokum og hóf Maggý VE 20. ágúst, sem er mjög góður dagur, því að er afmælisdagurinn minn, en Maggý VE landaði þá 9,4 tonnum í Vestmannaeyjum og kom síðan til Sandgerðis með um 10 tonna afla.
Maggý VE á sér reyndar nokkuð langa sögu á Suðurnesjum því að árið 2001 keypti útgerðarmaðurinn og skipstjórinn Tómas Sæmundsson, eða Tommi á Hafnarbergi eins og hann var iðulega kallaður, bátinn. Hann keypti þá bátinn og fær báturinn nafnið Hafnarberg RE. Kom sá bátur í staðinn fyrir gamla Hafnarbergið RE, en sá bátur hafði verið gerður út undir nafninu Hafnarberg RE síðan árið 1970, og þar á undan hét sá bátur Jón Gunnlaugs GK frá 1959.
Þó svo að bátarnir báðir, það er að segja, Hafnarberg RE frá 1970 og Hafnarberg RE frá 2001, hafi verið RE, þá var það þannig að Tommi gerði alltaf út frá Sandgerði, var á netum yfir vertíðina og fiskaði alltaf vel og síðan á humri yfir sumarið, og honum gekk það vel á Hafnarbergi RE á humrinum að það kom fyrir að Hafnarberg RE (báturinn frá 1970) var aflahæsti humarbátur landsins. Frá 1970 og til 1997 þegar Miðnes ehf. var í Sandgerði þá landaði Hafnarberg RE öllum humarafla sínum hjá Miðnesi.
Einn fallegasti báturinn sem hefur verið gerður út frá Suðurnesjunum og reyndar liggur sá bátur núna sokkinn við bryggju í Grindavíkurhöfn.
Annars að Maggý VE, Tommi gerði út bátinn þegar hann hét Hafnarberg RE til ársins 2007, en þá kaupir Einar Magnússon bátinn og fær þá báturinn nafnið Ósk KE 5, og er með því nafni til ársins 2011 þegar Narfi ehf. í Vestmannaeyjum kaupir bátinn og fær nafnið Maggý VE.
Ekki nóg með að báturinn eigi sér útgerðarsögu frá Suðurnesjunum því að skipstjórinn á Maggý VE er Karl Ólafsson sem á sér yfir 30 ára sögu sem skipstjóri að mestu á dragnótabátum frá Keflavík sem þó voru gerðir út frá Sandgerði, lengst af á Haferni KE sem var eikarbátur og síðan á Erni KE sem í dag heitir Ásdís ÍS.
Annars þá hefur veiðin hjá dragnótabátunum verið nokkuð góð. Siggi Bjarna GK er með 77 tonn í 8 róðrum og mest 12,6 tonn. Benni Sæm GK 65 tonn í 8 róðrum og mest 12 tonn. Sigurfari GK 30 tonn í 5 og Margrét GK 50 tonn í 6 róðrum og mest 13 tonn.
Enn sem komið er er enginn línubátur að róa dagróðra frá Suðurnesjunum en þeir eru svo til allir farnir í burtu. Í Grindavík hafa stóru línubátarnir tveir verið að veiðum og eru þeir að eltast við löngu og keilu. Þeir eru í því skaki þangað til nýtt fiskveiðiár byrjar og komast þeir þá í þorskinn. Páll Jónsson GK hefur landað 183 tonnum í 3 róðrum og Sighvatur GK 192 tonnum í 2 róðrum.







