Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Pistlar

Hvenær kom hjólið til Íslands?
Föstudagur 28. ágúst 2026 kl. 07:50

Hvenær kom hjólið til Íslands?

Sumarveðrinu hefur verið nokkuð misskipt. Varla hundum út sígandi á tímabilum og lítið annað að gera en að leggjast á netið og velta fyrir sér stóru spurningunum.   Af hverju er himinninn blár? Af hverju er sjórinn blautur? Og hvenær var hjólið fundið upp? Samkvæmt velflestum heimildum var hjólið fundið upp fyrir um það bil 5-6000 árum og þótti fljótlega snjallt til alls konar notkunar sem létti mönnum og skepnum verkin. Fyrir tíma hjólsins þurftu vinnudýr (eins og uxar eða hestar) og menn að bera eða draga allt á bakinu eða á sleðum. Með vögnum gátu sömu dýr flutt allt að tífalt meiri þunga á sama tíma án þess að örmagnast.

Allt fram á seinni hluta nítjándu aldar var hjólið nánast óþekkt fyrirbæri á Íslandi. Samkvæmt bestu heimildum er það ekki fyrr en árið 1874 sem hjólið í sinni eiginlegu mynd kemur til Íslands, sama ár og íslenska krónan er tekin upp. Hjólið hefur sannað gildi sitt, en krónan í sinni upphaflegu mynd hefur fallið um 99, 97%. Sagt er að það hafi verið Vestur-Íslendingar sem flúið höfðu vistarbönd bænda og útgerðarmanna sem sent hafi hjólið til Íslands. Ástæða þess að hjólið kom ekki fyrr til landsins er sögð vera að hér væru engir vegir og miklar brekkur, auk fólksfæðar. Betra væri að bera bara hlutina eða hengja þá á hesta. Engum datt í hug að hægt væri að nota hjólið til þess að byggja vegi eða ferðast á milli landshluta. Í dimmustu moldarkofum afturhalds og íhalds var sami söngurinn sunginn: Við þurfum ekki hjólið, við getum gert þetta sjálf. Við höfum sem betur fer náð að stíga út úr moldarkofunum og erum byrjuð að sjá að ekki er allt slæmt sem kemur að utan. Við fengum símann, þrátt fyrir hörð mótmæli bændasamtakanna, við fengum okkar fyrstu virkjanir með dyggri hjálp Marshall-aðstoðarinnar og við fengum meira að segja litasjónvarpið þrátt fyrir hávær mótmæli þeirra sem sögðu að litirnir væru ljótir.  Tímarnir hafa breyst.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Senn kjósum við um hugsanlegt framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ekki um aðild, ekki um sjálfstæði, og ekki um fullveldi, eða hvort fjölskyldur tali saman eins og einn formaður þeirra sem eru á móti aðild virðist halda. Þar verður hver að gera það upp við sjálfan sig hvað hver vill. Það er ekki verið að finna upp hjólið eða hvernig eigi að nota það. Það er bara verið að leggja fyrir þjóðina hvort hún vilji taka upp viðræður. Svona svipað og þegar við spyrjum okkur sjálf hvort við eigum að tala við nágrannann um að mála grindverkið. Við skulum ekki halda áfram að syngja fortíðarsönginn í skuldahöllunum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn