Rólegt í heimahöfn en Suðurnesjabátar gera það gott úti á landi
Sko, það fór þá loksins þannig að við á Suðurnesjum fengum loksins sumar, búið að vera í það minnsta sól síðustu daga, en nokkuð hvasst og þetta hvassviðri hefur haft áhrif á sjósókn hjá bátunum.
Reyndar er þetta nú þannig að þessi mánuður er vægast sagt mjög rólegur því að flest fyrirtækin eru í sumarfríi. Einhverjir bátar eru fyrir austan og þar er til dæmis Einhamar ehf. í Grindavík með alla sína þrjá báta og hefur gengið nokkuð vel hjá þeim. Gísli Súrsson GK er kominn með 151 tonn í sextán róðrum og mest 13 tonn. Auður Vésteins SU 114 tonn í sextán róðrum og mest 10 tonn og Vésteinn GK 74 tonn í ellefu og mest 9,6 tonn. Allir þessir bátar hafa verið að landa að mestu á Stöðvarfirði og líka í Neskaupstað.
Fáein Suðurnesjaskip og -bátar eru fyrir norðan. Margrét GK sem er á dragnót að eltast við ýsuna. Hefur Margrét GK landað 80 tonnum í tólf róðrum. Landað nokkuð víða: á Hólmavík, Sauðárkróki og Skagaströnd.
Fyrir norðan eru líka togarar Nesfisks sem eru á rækjuveiðum og hefur Sóley Sigurjóns GK landað 153 tonnum í þremur og Pálína Þórunn GK 90 tonnum í tveimur. Af þessum afla þá er Sóley Sigurjóns GK með 67 tonn af rækju og Pálína Þórunn GK er með 22 tonn af rækju; mest af fiskinum sem báðir togararnir hafa landað er þorskur. Þeir landa á Siglufirði og er rækjunni ekið til vinnslu á Hvammstanga en fiskinum ekið suður til Sandgerðis og Garðs til vinnslu.
Talandi um togara þá hafa sex togarar landað núna í Grindavík. Bergey VE kom með 64 tonn í land snemma í júlí, Hulda Björnsdóttir GK hefur landað 324 tonnum í þremur löndunum og mest 145 tonnum. Birtingur NK með 159 tonn í tveimur löndunum, Vestmanney VE 60 tonn í einni löndun.
Svo komu báðir frystitogararnir, Tómas Þorvaldsson GK kom með 917 tonn og var aflinn ansi blandaður, en þó mest af þorski, 294 tonn, 226 tonn af ýsu, 121 tonn af karfa, 77 tonn af gulllaxi og 62 tonn af grálúðu sem var veidd djúpt úti fyrir Norðurlandi.
Hrafn Sveinbjarnarson GK kom snemma í júlí með 497 tonn í land og var mest af þorski í þeim afla, 196 tonn, 149 tonn af ýsu og 93 tonn af karfa og 36 tonn af ufsa.
Sæbjúguveiðarnar ganga ansi vel, Klettur ÍS er kominn með 153 tonn í 13 róðrum og mest 22 tonn, reyndar er Klettur ÍS hættur í Faxaflóanum og kominn vestur til Bolungarvíkur og landaði þar 22 tonnum í einni löndun. Jóhanna ÁR hefur landað 37 tonnum í fjórum róðrum.
Annars líður að lokum júlí og enn þá eru strandveiðarnar í gangi og stefnir í að þetta strandveiðitímabil sé orðið eitt það lengsta, því að undanfarin ár hafa veiðar iðulega verið stöðvaðar um miðjan júlí. Verður fróðlegt að sjá hversu langt fram í ágúst strandveiðar verða leyfðar.






