Miðvikudagur 12. ágúst 2026 kl. 20:31

Mögnuð almyrkvastund

Það var mögnuð almyrkvastund á Suðurnesjum síðdegis þó svo sólin og tunglið væri í felum bakvið skýin. Skuggi tunglsins þaut á 3.000 kílómetra hraða yfir Reykjanesskagann og almyrkvi stóð yfir í næstum tvær mínútur. Það var magnað að fylgjast með þegar myrkvinn lagðist yfir.

Í myndskeiðinu sem hér fylgir er búið að hraða myrkvanum þannig að þetta er um 10 mínútna upptaka spiluð á rétt um mínútu. Hljóðið er hins vegar á réttum hraða og var tekið upp þegar myrkvinn náði hámarki. Fuglar þögnuðu ekki, eins og heyra má.

Myndskeið: Hilmar Bragi og Bárður Sindri