Stysta og fegursta nótt lífsins
- segir Stjörnu-Sævar um komandi almyrkva
Nú eru tveir sólarhringar í að eitt glæsilegasta náttúrufyrirbrigði sögunnar eigi sér stað hér á landi. Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, hélt vel sóttan fyrirlestur um almyrkvann hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í hádeginu. Við fengum hann til að fara yfir það helsta sem fólk þarf að vita fyrir stóru stundina.
— Hvað erum við að fara að upplifa eftir tvo sólarhringa?
„Ef veðrið verður gott þá upplifirðu náttúrulega bara fegurstu sýningu sem náttúran býður upp á,“ segir Sævar spenntur. „En þó að veðrið verði ekki gott þá verður þetta samt sem áður einstakur og ógleymanlegur dagur. Við upplifum alveg magnaða sýningu þegar myrkur skellur skyndilega og hratt á. Þá upplifum við saman stystu og fegurstu nótt lífsins, vonandi.“
— Hvernig á fólk að undirbúa sig núna á síðustu metrunum?
„Í fyrsta lagi þarf fólk að kynna sér tímasetningarnar vel og hvenær á að nota sólmyrkvagleraugu og hvenær ekki. Það þarf ekki að vera með gleraugun allan tímann eins og stundum er haldið fram, heldur eingöngu á meðan horft er beint í átt að sólinni. Þess á milli er maður bara eins og á hverjum öðrum degi.“
Sævar bendir á að ef það er skýjað sé best að koma sér út um hálf sex-leytið:
„Ef það verður skýjað er best að vera úti í kringum hálf sex til sex, því þá eru mestar breytingar að eiga sér stað. Þá finnum við fyrir myrkvanum, heyrum í honum gerast og upplifum svo þessa „nótt“ þegar hann skellur á af fullum þunga.“
— Þannig að þú lofar því að þetta verði einstakt, óháð veðri?
„Já, almyrkvinn er algjörlega einstakur, líka þótt það verði skýjað. Vissulega er svekkjandi ef við sjáum ekki dýrðina sjálfa á himninum, en upplifunin er alltaf frábær, mögnuð og eitthvað sem er fyllsta ástæða til að gera sem mest úr, njóta og hafa gaman af. Ég óska öllum bara notalegs 12. ágúst, sama hvernig viðrar!“

