Sunnudagur 16. ágúst 2026 kl. 00:24

Glæsileg flugeldasýning í Vogum

Björgunarsveitin Skyggnir í Vogum stóð fyrir glæsilegri flugeldasýningu við tjörnina í Vogum þegar fjölskyldudagar Voga náðu hámarki í kvöld. Fjölskyldudagarnir eru nú haldnir í 30. sinn og hefur hátíðin farið vel fram í frábæru veðri.

Meðfylgjandi myndskeið tók Hilmar Bragi upp í kvöld.

Fleiri myndir frá hátíðinni eru væntanlegar á vf.is og í næsta tölublað Víkurfrétta.