Opið hús hjá Drúídreglunni á laugardag
Hin íslenska Drúídregla efnir til opins húss laugardaginn 5. september næstkomandi. Dagskráin fer fram í húsnæði reglunnar að Flugvallarbraut 736 í Reykjanesbæ á milli klukkan 14:00 og 17:00.
Viðburðurinn er tilvalinn fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast starfsemi reglunnar og verða hluti af öflugu bræðralagi þar sem gildin vinátta, mannrækt og virðing eru í fyrirrúmi. Eins og einkunnarorð reglunnar segja er þetta staður „þar sem góðir menn verða betri“.
Gestum verður boðið upp á kaffi og meðlæti á meðan þeir kynna sér starfið.
Upplýsingar um viðburðinn:
-
Dagsetning: 5. september
-
Tími: Kl. 14:00 – 17:00
-
Staðsetning: Flugvallarbraut 736, 262 Reykjanesbær
-
Veitingar: Kaffi og meðlæti í boði
Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir!







