Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Bætt öryggi við Valahnjúk
Þriðjudagur 1. september 2026 kl. 06:08

Bætt öryggi við Valahnjúk

Um þessar mundir er unnið að því að bæta öryggi og merkingar við Valahnúk á Reykjanesi. Settar verða upp skýrari merkingar sem vekja athygli á hættum á svæðinu og leiðbeina gestum um örugga umgengni.

Valahnúkur er vinsæll áningarstaður en þar eru brattir sjávarhamrar, sprungur í berginu og hætta á hruni, sérstaklega nærri brúnum. Mikilvægt er að gestir fylgi merkingum og sýni sérstaka aðgát þegar veður er vont, segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Reykjaness.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Gestir og ferðaþjónustuaðilar eru beðnir um að sýna framkvæmdunum og tímabundnum merkingum tillitssemi á meðan vinnan stendur yfir. Markmiðið er að gera heimsóknir á svæðið öruggari.

Bílakjarninn
Bílakjarninn