Markaðsstofa Reykjaness í slitaferli
Rekstur vænkast en eigið fé enn neikvætt
Síðasti ársreikningur Markaðsstofu Reykjaness hefur verið lagður fram. Hann er fyrir árið 2025, en stjórn félagsins hefur áður samþykkt að slíta starfsemi þess. Ársreikningurinn sýnir að reksturinn snerist úr 12,3 m.kr. tapi árið 2024 í 3,7 m.kr. hagnað árið 2025, einkum vegna aukins framlags Ferðamálastofu og lægri verkefnakostnaðar.
Þrátt fyrir batnandi rekstur er eigið fé félagsins enn neikvætt um 6,1 m.kr. Framkvæmdastjóra SSS hefur verið falið að halda áfram vinnu við uppgjör viðskiptastöðu og slitaferli félagsins.







