Heinemann fjárfest fyrir milljarða í uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli
Ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun á Íslandi á síðari árum
Heinemann Travel Retail Iceland ehf., sem rekur fríhafnaverslanir á Keflavíkurflugvelli, hefur skilað inn sínum fyrsta ársreikningi. Félagið var stofnað árið 2025 og hóf formlegan rekstur þann 7. maí 2025 undir vörumerkinu Ísland Duty Free en þá var skipt um rekstraraðila fríhafnarinnar eftir alþjóðlegt útboðsferli og undirritun langtímasamnings milli Isavia og Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Umfangsmiklar endurbætur á verslunarrýmum á Keflavíkurflugvelli hófust í ágúst 2025 og kröfðust verulegrar fjárfestingar hér á landi. Breytingarnar ásamt endurhönnun á verslununum eru þær viðamestu sem gerðar hafa verið á fríhafnarverslun í Keflavík frá upphafi og ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun á Íslandi á síðari árum. Þegar þeim lýkur, í september á þessu ári, hefur Heinemann fjárfest tugum milljóna evra í verkefninu.
Búast við arðsamari rekstri í framtíðinni
Verulegar fjárhæðir fóru einnig í að breyta rekstrinum úr opinberum rekstri yfir í einkarekstur en innleiða þurfti ný kerfi og lausnir til að tryggja sjálfbæran og farsælan rekstur á Íslandi.
„Í upphafi breytinganna urðu smávægilegar tafir sem leiddu til þess að tekjur félagsins fyrir árið 2025 eru undir áætlunum. Fyrirtækið er þegar komið í hagnað og hefur fulla trú á því að breytingarnar muni skila betri og arðbærari rekstri í framtíðinni. Þrátt fyrir neikvætt eigið fé í árslok 2025 leikur enginn vafi á rekstrarhæfi félagsins,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free.
Flestir starfsmenn héldu áfram störfum
Meðalfjöldi starfsmanna í fullu starfi (e. FTE) á árinu var 137,56 en flestir fyrrum starfsmenn Isavia í fríhöfninni héldu áfram störfum. Fjöldi starfsmanna í fullu starfi í lok tímabilsins var 129,74. Nokkuð jöfn skipting er á starfsfólki eftir kyni en 56% starfsfólks voru konur og 44% karlar. Kynjahlutfall stjórnenda árið 2025 var 40% konur og 60% karlar en er nú, eftir breytingar á stjórnendateymi 60% konur og 40% karlar.
Heildartekjur félagsins árið 2025 námu 8.167 milljónum króna en tap ársins var 769 milljónir króna. Heildareignir í árslok námu 3.265 milljónum króna.






